Atvinnuvegaráðherra Hanna Katrín Friðriksson úthlutaði í dag styrkjum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026 til 18 verkefna um allt land. Samtals nema styrkirnir tæplega 490 milljónum króna.
Við úthlutunina var sérstök áhersla lögð á öryggi ferðamanna á vinsælum áfangastöðum og hafði það vægi í gæðamati umsókna.
Stærsti styrkur ársins rennur til Vestmannaeyjabæjar vegna uppbyggingar göngustíga á Eldfell í tengslum við listaverkið Sjónarhorn flakkarans (The Wanderer’s Perspective) eftir Ólaf Elíasson. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta öryggi gesta, vernda viðkvæmt náttúrusvæði og um leið halda á lofti minningu eldgossins í Heimaey árið 1973.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir