Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alexander Sokurov hætti við þátttöku á Feneyjatvíæringnum eftir mótmæli

„Við gerðum stór mis­tök, en það breytir ekki kjarn­anum í gagn­rýn­inni“

Alexander Sokurov hætti við þátttöku á Feneyjatvíæringnum eftir mótmæli
Alex­ander Sokurov Leik­stjór­inn ákvað að mæta ekki á Fen­eyjat­ví­ær­ing­inn Mynd: OLGA MALTSEVA / AFP

Rúss­neski leik­stjór­inn Alex­ander Sokurov hefur ákveðið að taka ekki þátt í Fen­eyjat­ví­ær­ingnum eftir að opið bréf frá rúss­neskum og ítölskum lista­mönnum og aðgerð­ar­sinnum gagn­rýndi þátt­töku hans í lok­uðum umræðu­fundum um andóf og frið.

Leik­stjór­inn hafði verið boðið á ráð­stefnu undir yfir­skrift­inni „Dissent and Peace“ í Feneyjum, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá skipu­leggj­endum gat hann ekki mætt vegna „skyndi­legs for­falls“. Sokurov sjálfur kall­aði þá skýr­ingu hins vegar „vit­leysu“.

Í sam­tali við óháða rúss­neska mið­il­inn Agent­stvo sagði hann að hann hefði ekki getað flogið til Feneyja „af ástæðum sem hann réði ekki við.“. Við Telegram-rás­ina Podiem sagði hann að hann hefði verið til­bú­inn að ferð­ast til Feneyja og þegar skrifað ræðu sína.

„Ástæðan er ein­föld, það voru ákveðin skipu­lags­mál sem ekki voru leyst í tæka tíð,“ sagði hann.

Í opna bréf­inu til for­seta Tví­ær­ings­ins var umræðu­fund­unum lýst sem „leik­riti“, þar sem aðeins ákveðnir og „öruggir“ and­ófs­menn fengju að taka þátt bak við luktar dyr á meðan raun­veru­legir and­ófs­menn sættu fang­elsi, útlegð eða dauða.

Höfundar bréfs­ins sögðu boð til Sokurovs sér­stak­lega umdeild þar sem hann gæti „sveifl­ast áhættu­laust milli valds­ins og alþjóð­legrar við­ur­kenn­ingar“, á meðan aðrir greiddu hátt verð fyrir andóf sitt.

Meðal þeirra sem skrif­uðu undir bréfið voru Nadezhda Tolokonnikova úr Pussy Riot, lista­konan Sasha Skochilenko og sýn­ing­ar­stjór­inn Marat Gelman.

Athygli vakti að Sasha Skochilenko hafði áður notið opin­bers stuðn­ings Sokurovs þegar hún var dæmd í sjö ára fang­elsi árið 2023 fyrir and­stríðs­boð­skap. Sokurov hafði þá kallað málið „nið­ur­læg­ingu rétt­ar­kerf­is­ins“ og dóm­inn „skelfi­legan“.

Marat Gelman sagði síðar að bréfið hefði ekki átt að vera árás á Sokurov per­sónu­lega heldur gagn­rýni á þátt­töku hans í ákveðnum umræðu­fundi.

„Við gerðum stór mis­tök, en það breytir ekki kjarn­anum í gagn­rýn­inni,“ sagði hann.

Þegar leik­stjór­inn var spurður út í bréfið sem skrifað var gegn honum sagði hann við Telegram-rás­ina Rotonda að hann væri „fullur sam­úðar“ með höf­undum þess. „Ég óska þeim þess að finna leið til að sefa beiskju sína,“ sagði hann. „Hvað sem þeim kann að finn­ast, hvaða punkt sem þau setja á bak við eigin örlög – Rússland mun að eilífu vera, ef ekki föð­ur­land, þá móð­ur­land. Fyrir þau og fyrir mig,“ hafði rásin eftir Sokurov.

Ýmsir rúss­neskir stjórn­ar­and­stæð­ingar komu Sokurov til varnar. Andrei Pivo­varov sagði „algjör­lega rangt“ að ráð­ast á leik­stjór­ann sem hefði árum saman gagn­rýnt stjórn­völd og stutt ofsótta ein­stak­linga.

Yulia Galya­m­ina kall­aði bréfið „skammar­legt“ og sagði Sokurov „langt yfir“ slíka gagn­rýni haf­inn.

Rúss­neskir rík­is­miðlar tóku einnig þátt í umræð­unni. Á rík­is­sjón­varps­stöð­inni Rossiya-24 var málið kynnt þannig að „Rússa­hat­arar hefðu ákveðið að þagga niður í manni sem hefði sýnt þeim samúð“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta