Matvælastofnun varar við neyslu á Sky flakes snack pack frá filipeysku vörumerkinu MY San sem Fiska.is flytur inn og selur í verslun sinni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness ( HEF) og er innköllunin vegna aðskotaefna (fjölhringlaga arómatíska kolvetni MCPD) sem greindust í vörunni.
Tilkynningin um innköllun kom til Íslands í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður.
Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar, farga eða skila til verslunarinnar til að fá endurgreiðslu.

Mynd: Aðsend































Athugasemdir