Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Átta barna faðir meðal fórnarlamba í skotárás á mosku í San Diego

„SS“-merk­ing fannst á vopni eftir moskuárás­ina.

Átta barna faðir meðal fórnarlamba í skotárás á mosku í San Diego
Frá vett­vangi skotárás­ar­innar Þrír lét­ust í árásum ung­ling­anna Mynd: ZOE MEYERS / AFP

Tveir ung­lings­piltar skutu þrjá til bana í árás á stærstu mosku San Diego í gær, áður en þeir snéru byss­unum að sjálfum sér.

Annar tveggja pilt­anna sem grun­aðir eru um að hafa orðið þremur að bana í skotárás við stærstu mosku San Diego í gær, er sagður hafa verið 17 ára fyrr­ver­andi glímu­kappi í fram­halds­skóla.

Hinir grun­uðu eru þeir Cain Clark, 17 ára, og Caleb Vazquez, 18 ára. Þeir fund­ust látnir inni í BMW-bif­reið nærri mosk­unni og telur lög­regla að þeir hafi svipt sig lífi.

Myndir af Clark hafa birst á sam­fé­lags­miðlum þar sem hann sést með verð­launa­pen­inga úr glímu­keppnum.

Lögregla segir hat­urs­full skila­boð hafa verið skrifuð á vopnin sem notuð voru í árásinni. Þá fannst hagla­byssa með lím­miða merktum „SS“ nærri vett­vangi, sem talið er vísa til Schutzstaffel-sveita nas­ista í Þýska­land.

Meðal fórn­ar­lamba árás­ar­innar var örygg­is­vörð­ur­inn og átta barna fað­ir­inn Amin Abdulla, sem hefur verið hylltur sem hetja fyrir að hafa „bjargað manns­lífum“.

Samkvæmt NBC 7 hefur minn­ing­ar­kveðjum til Abdulla rignt inn á sam­fé­lags­miðlum.

Lög­reglu­stjór­inn í San Diego, Scott Wahl, lýsti gjörðum Abdulla sem „hetju­legum“ og sagði að hann kynni að hafa bjargað mörgum manns­lífum.

Clark hafði keppt í glímu fyrir Madison-mennta­skól­ann tíma­bilið 2024–2025, þó hann hafi sam­kvæmt NBC ekki verið nem­andi við skól­ann sjálfan. Tals­maður skóla­yf­ir­valda í San Diego sagði hann hafa stundað fjar­nám og átt að útskrif­ast síðar í þessum mán­uði.

Samkvæmt Samtökum um sam­skipti Banda­ríkja­manna og íslams, bár­ust sam­tök­unum 8.683 til­kynn­ingar um andúð gegn múslimum á síð­asta ári, sem er mesti fjöldi kvart­ana sem sam­tökin hafa skráð á einu ári frá því þau hófu starf­semi árið 1996.

Fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna í San Diego, Tazheen Nizam, for­dæmdi árás­ina harð­lega.

„Enginn ætti nokkurn tíma að ótt­ast um öryggi sitt á meðan hann sækir bænir eða stundar nám í grunn­skóla,“ sagði hún.

Borg­ar­stjóri New Yor, Zohran Mamdani sagð­ist einnig vera „skelf­ingu lost­inn“ vegna árás­ar­innar og hvatti Banda­ríkja­menn til að sam­ein­ast gegn íslamó­fó­bíu og „póli­tík ótta og sundr­ungar“.

Þá kom fram að lög­reglan í New York hefði aukið við­veru sína við moskur í borg­inni í kjöl­far árás­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta