Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust þrjár umsóknir um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja en einn dró umsókn sína til baka.
Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 29. apríl síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 18. maí. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.































Athugasemdir