Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af Barabells Coco Choco sem Core ehf. flytur inn. Getur innihaldið aðrar vörutegund sem inniheldur jarðhnetur og soja sem er ofnæmis- og óþolsvaldar. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF).
Tilkynning barst til Íslands í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Þeir sem eiga umrædda vöru ennþá til eru beðnir um að neyta hennar ekki, og farga eða
skila til Core heildsölu ehf, Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur gegn fullri endurgreiðslu.






















Athugasemdir