Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana

Héngu í margar klukku­stundir í 30 metra hæð

Átta nemendum bjargað úr föstum rússíbana
Rús­sí­ban­inn Nem­end­urnir hengu föst í 30 metra hæð Mynd: Skjáskot

Átta nem­endur lentu í óskemmti­legri lífs­reynslu í gær­kvöld þegar vett­vangs­ferð þeirra í skemmti­garð í Galv­eston í Houston end­aði nærri með ósköpum eftir að rús­sí­bani sem þau voru í bil­aði.

Slökkvi­liðs­menn voru kall­aðir á stað­inn í skemmti­garð­inum Pleasure Pier þar sem nem­end­urnir sátu fastir hátt yfir jörðu. Björg­un­ar­menn not­uðu körfu á slökkvi­bíl til að ná fólk­inu niður úr tæk­inu.

Myndir af vett­vangi sýna nem­end­urna sitja og bíða á meðan björg­un­ar­menn unnu að því að koma þeim til hjálpar. Það var í raun það eina sem þeir gátu gert eftir að hafa setið fastir í marga klukku­tíma.

Nem­end­urnir fest­ust í tæk­inu um klukkan 17:20 að stað­ar­tíma. Síðasti far­þeg­inn var ekki kom­inn niður fyrr en um klukkan 21:00.

Samkvæmt Mike Varela yngri, slökkvi­liðs­stjóra í Galv­eston, voru nem­end­urnir sýni­lega skelk­aðir eftir reynsl­una.

Voru um 30 metra yfir jörðu

Allir átta far­þeg­arnir voru skoð­aðir af heil­brigð­is­starfs­fólki eftir björg­un­ina vegna hættu á ofþornun. Nið­ur­staðan var sú að eng­inn þeirra hefði hlotið alvar­leg meiðsli.

Höfðu þeir setið í nærri 30 metra hæð í nokkrar klukku­stundir þegar björg­unin fór fram.

Nem­end­urnir voru þátt­tak­endur í vett­vangs­ferð á vegum STEM Academy-gagn­fræði­skól­anum og STEM Academy-fram­halds­skól­anum.

Tals­maður Landry's Inc., sem rekur Pleasure Pier, sagði að bilun hefði orðið í tæk­inu.

Samkvæmt fyr­ir­tæk­inu virk­aði örygg­is­kerfi rús­sí­ban­ans eins og til var ætl­ast og stöðv­aði hann sjálf­krafa þegar bil­unin kom upp.

Þrátt fyrir að allir hafi sloppið ómeiddir er lík­legt að sumir úr hópnum bíði nokkuð með að fara aftur í rús­sí­bana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta