Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar alvarlega árás sem átti sér stað í bílakjallara í Firði í Hafnarfirði á laugardag. Fjórtán ára stúlka fannst þar meðvitundarlaus eftir að ungmenni komu að henni og gerðu viðvart.
Morgunblaðið greindi frá málinu.
Að sögn Skúla Jónssonar, stöðvarstjóra lögreglunnar í Hafnarfirði, bendir allt til þess að ráðist hafi verið á stúlkuna. Hún hlaut meðal annars brákað rifbein, kúlu á höfði og mar á líkamanum. Stúlkan var flutt á sjúkrahús en hefur nú verið útskrifuð og er á batavegi.
Stúlka á sautjánda aldursári er grunuð um að hafa átt aðild að árásinni. Málið er enn til rannsóknar.































Athugasemdir