Séra Guðni Már Harðarson hefur verið skipaður prestur íslenska safnaðarins í Danmörku og mun jafnframt gegna embætti sendiráðsprests Íslands í Kaupmannahöfn. Embættið var meðal þeirra prestsstarfa sem auglýst voru laus til umsóknar fyrr á þessu ári.
Sendiráðspresturinn hefur starfsstöð í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn og sinnir þjónustu við Íslendinga búsetta í Danmörku.
Samkvæmt tilkynningu frá Þjóðkirkjunni var Guðni Már vígður til prestsþjónustu fyrir KFUM og KFUK og KSH árið 2006. Hann hefur starfað við Lindakirkju í tæpa tvo áratugi og tekið að sér fjölbreytt ábyrgðar- og trúnaðarstörf innan kirkjunnar, auk þátttöku í starfi Hins íslenska Biblíufélags, sumarbúða KFUM og KFUK og Minningarsjóðs Bryndísar Klöru.
Hann er giftur Ásdísi Björnsdóttur, enskukennara, og eiga þau þrjú börn, Nóa Pétur, Dagmar Eddu og Signýju Náð.





















Athugasemdir