Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Einmanaleiki jafn hættulegur og að smóka fimmtán rettur á dag“

Maður er manns gaman

„Einmanaleiki jafn hættulegur og að smóka fimmtán rettur á dag“
Ragga Nagli sál­fræð­ingur með áherslu á heilsu­venjur, heil­brigðan lífs­stíl, jákvæða hugsun, hollan og góm­sætan mat og síð­ast en ekki síst hennar aðal­á­huga­mál lyft­ingar. Mynd: Sunna Gautadóttir

Nýjar rann­sóknir og lýð­heilsu­gögn sýna að skortur á ríkum félags­tengslum og vax­andi ein­mana­leiki hafa álíka alvar­legar afleið­ingar fyrir lík­am­lega heilsu og aðrir lífs­stíls­sjúk­dómar. Í ræðu Raggi Nagli sem hún flutt á þjóð­há­tíð­ar­degi Íslend­inga í Kaup­manna­höfn í fyrra var sjónum beint að því að mann­leg sam­skipti í „kjöt­heimum“ eins og Ragga segir séu ekki aðeins dægradvöl, heldur ein af grunn­stoðum almennrar heil­brigð­is­þjón­ustu og lang­lífis.

Í færslu Naglans á Facebook segir hún að „fyrir nákvæm­lega ári síðan fékk Naglinn þann heiður að vera fjall­konan á þjóð­há­tíð­ar­degi Íslend­inga í Kaup­manna­höfn og gerði þar ein­mana­leika og mik­il­vægi félags­tengsla að umfjöll­un­ar­efni ræð­unnar.

Maður er manns gaman og eng­inn er eyland.

Að sýna sig og sjá aðra, hitta mann og annan er jafn mik­il­vægt, ef ekki mik­il­væg­ara fyrir heils­una eins og að hrista skank­ana og gúlla holl­ustu í ginið.

Því rann­sóknir sýna að fólk sem á í sterkum félags­legum tengslum er 50% lík­legra til að vera á lífi þegar þeim er fylgt eftir tíu árum seinna, miðað við fólk sem er með léleg félags­tengsl.

Eins sýna rann­sóknir að ein­mana­leiki er jafn hættu­legt heils­unni og að smóka fimmtán rettur á dag og eykur líkur á dauðs­föllum úr ýmsum sjúk­dómum eins og hjarta og æða­sjúk­dómum og háþrýst­ingi.“

Maðurinn er hjarð­dýr

Frá þró­un­ar­fræði­legu sjón­ar­horni er mað­ur­inn hjarð­dýr sem þurfti sam­fé­lag til að lifa af. Höfnun eða ein­angrun úr hópnum jafn­gilti lífs­háska. Ragga segir að þetta sé í okkar DNA og veldur því að langvar­andi ein­mana­leiki er túlk­aður af lík­am­anum sem stöðugt neyð­ar­á­stand.

„Því ein­mana­leiki er streitu­á­stand. Mann­skepnan er hjarð­dýr í eðli sínu og þarf að til­heyra hópi til að lifa af. Þegar for­feður okkar voru að ráfa um stepp­urnar þurftu þeir sam­fé­lag. Einn út að finna skepnu til ætis, einn að passa börnin á meðan, annar að vera á vakt­inni fyrir óvinum og rán­dýrum. Í árþús­undir var það svo að sá sem var hafnað af hjörð­ini lifði ekki af. Það er því á bólakafi í okkar dýpsta DNA að til­heyra sam­fé­lagi.

Þegar við erum ein og ein­mana öskrar hver ein­asta fruma lík­am­ans að nú sé ógn fyrir höndum og und­ir­stúka og heila­d­ing­ull skipa nýrna­hett­unum að sprauta út adrena­líni og kortisóli, en þessi hormón eru mjög bólgu­mynd­andi ef þau mar­inera lengi um æðarnar.

Sem eykur líkur á ýmsum sjúk­dómum.

Adrena­lín og kortisól keyra upp hjart­slátt, blóð­þrýst­ing, hraðar á öndun, sem yfir langan tíma eykur álagið á hjarta- og æða­kerfið.“

Aldrei eins tengd en aldrei eins ein­mana

Þrátt fyrir að mann­kynið hafi aldrei verið eins tækni­lega sam­tengt í gegnum sam­fé­lags­miðla og snjall­tæki, sýna gögn að ein­mana­leiki hefur aldrei verið útbreidd­ari. Sem dæmi má nefna að einn af hverjum tveimur íbúum í Banda­ríkj­unum seg­ist upp­lifa ein­mana­leika. Þessi þróun hefur orðið til þess að Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) og Vivek Murthy, fyrrum land­læknir Banda­ríkj­anna, stofn­uðu sér­staka nefnd til að bregð­ast við þessum far­aldri. Með­al­not­andi eyðir um þremur til fjórum klukku­stundum á dag á sam­fé­lags­miðlum. Það jafn­gildir 45 dögum á ári þar sem raun­veru­leg, lík­am­leg tengsl eiga undir högg að sækja.

„Ein­mana­leiki er mis­ræmi í þörf fyrir félags­tengsl og þann félags­skap sem stendur okkur til boða.

Oft höldum við rang­lega að við séum félags­lega mett af því við erum að hripa niður skila­boð á Facebook, senda fyndin mynd­bönd á spjall sauma­klúbbs­ins eða kommenta á myndir á Insta.

Við höfum aldrei verið eins tengd við hvort annað í gegnum sam­fé­lags­miðla en þrátt fyrir það aldrei eins ein­mana. Einn af hverjum tveimur í Banda­ríkj­unum segj­ast hafa upp­lifað ein­mana­leika. Og yfir­völd víða erlendis taka þessum far­aldri mjög alvar­lega, en fyrrum land­læknir USA Vivek Murthy stofn­aði sér­staka nefnd innan WHO til að sinna þessum mála­flokki.

Því við eyðum 3-4 klst á dag í sam­fé­lags­miðlum sem eru 1095 klst á mán­uði, eða 45 dagar á ári. Semsagt 1 og ½ mán­uður sem við erum ekki að nýta í að skapa, læra og njóta lífs­ins. Og ekki að tengj­ast eins og móðir nátt­úra vill. Því snert­ing, augn­sam­band, knús, og mann­leg tengsl í kjöt­heimum losar oxýtócín, serótónín og dópamín og vellíðan streymir niður hryggjar­súl­una. En þeirra starfi lýkur ekki þar, því þau eru líka sára­græð­andi, styrkja bein, bólgu­lækk­andi, og dúlla við efna­skiptin.“

Knús frekar en sms

Þegar fólk á í beinum sam­skiptum og notar skyn­færin til að lesa í svip­brigði, lík­ams­tján­ingu og radd­blæ, virkj­ast mik­il­vægar heila­stöðvar. Rann­sóknir sýna að ein­mana eða ein­angrað fólk er 50% lík­legra til að grein­ast með Alzheimer eða elli­glöp vegna rýrn­unar á þessum vöðva heil­ans.

„Þegar við notum ekki heil­ann til að lesa í lík­ams­tján­ingu, svip­brigði, blæ­brigði tungu­máls eða augn­ráð þá rýrnar þessi vöðvi en Alzheimer og elli­glöp eru 50% lík­legri hjá fólki sem er ein­mana eða ein­angrað.

Ein­mana­leiki er mjög falið vanda­mál því honum fylgir skömm. Okkur finnst að það hljóti að vera okkur að kenna, við séum ekki nógu fyndin eða skemmti­leg, sem skýri af hverju við séum ein­mana.

Að hitta strák­ana yfir tuðru­sparki, fara í partýið eða hitta skvís­urnar í botn­lausum búbblum er ekki bara eitt­hvað glimmer í líf­inu.

Félags­leg nær­ing þarf að vera partur af prógrammet fyrir and­lega og lík­am­lega heilsu.

Tengsl fram­yfir tjákn.

Samfélag frekar en Snapchat

Augn­sam­band frekar en komment.

Knús frekar en sms.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi