Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mjög margir að losa sig við miða á tónleika Kaleo á Þingvöllum“

„Hafið skömm fyrir þetta Jakob Frímann og aðrir skipu­leggj­endur!!!“

„Mjög margir að losa sig við miða á tónleika Kaleo á Þingvöllum“

Tón­lista­há­tíðin BERGMÁL, þar sem hljóm­sveitin KALEO er aðal­núm­erið, fer fram á Þing­völlum laug­ar­dag­inn 20. júní 2026 á sum­ar­sól­stöðum. Búist er við allt að 20.000 gestum á þennan stór­við­burð.

Á Facebook síð­unni Tón­list­ar­við­burðir á Íslandi spyr Björn Amby Lárusson hvers vegna áhugi á hátíð­inni sé minnk­andi.

„Mjög margir að losa sig við/selja miða á tón­leika Kaleo á Þing­völlum, þann 20 júní nk. Hvað gerð­ist eig­in­lega? Af hverju þessi minnk­andi áhugi?“

Þá segir einn að sumir hafi verið að von­ast eftir úti­legu­stemn­ingu.

„Stærstu vöru­svik ever! Margir hafa eflaust von­ast eftir úti­legu­stemn­ingu, geta smurt sér nesti og tekið drykki með sér sem og tjald­stól til að njóta í íslenskri nátt­úru.

Eins og þetta lýtur út núna skaltu bara taka nóg af pen­ing með og vona það besta.

Ps mestu double stand­ards já JFM að segja í fréttum “fólk verður ekk­ert stoppað útaf ein­hverjum hlutum” en svo er búið að senda úr MJÖG skýran tölvu­póst hvað má og hvað má ekki… galið dæmi og tón­leika­hald­arar sjá alveg um það sjálfir að stúta allri til­hlökkun fyrir þessum við­burði.“

Gull aðgangur

Þá eru aðrir ekki sáttir við að boðið sé upp á gull aðgang á auka 50 þús­und krónur.

„Þeir settu mjög skrítin tón í þetta þegar þeir fóru að bjóða "gull aðgang" á auka 50.000 kall sem var "Sér­inn­gangur inn á hátíð­ar­svæðið

Bergmáls taupoki í tak­mörk­uðu upp­lagi

Aðgangur að Gull­svæði með:

  • Setu­stofu og þægi­legri aðstöðu
  • Betri sal­ern­is­að­stöðu
  • Einkabar með sér­stökum drykkj­ar­seðli
  • Hleðslu­stöðvum fyrir síma
  • Og fleira

Þarna er verið að skilja rík­ari ein­stak­linga frá hinum. Og banna svo almúg­anum að koma með nesti, tjald­stól og regn­hlíf. Hvaða PR klúður er þetta? Þetta er ekki þessi kózí sveita tón­leika stemmn­ing heldur frekar eins og ein­hver risa hátíð útí heimi með VIP og svo hinum. Held þetta hafi haft mikil áhrif.“

Miklu fjölskylduvænna í Danmörku

Annar bendir á að í Danmörku séu svip­aðar tón­list­ar­há­tíðir haldnar en þar sé miða­verð­inu stillt í hóf og hægt að taka með sér tjald­stóla.

„Hef bara aldrei vitað aðra eins vit­leysu. Græðgi og pen­ingaplokk, sér­ís­lenskt dæmi. Hef farið á sam­bæri­lega úti­tón­list­ar­há­tíð í Danmörk, Gron koncert, nema það er enþá stærra dæmi og fleira fólk, þar er það eina sem má ekki koma með er vökvi, en mátt þó koma með vatn sem keypt er i búð og i lok­uðum inn­sigl­uðum umbúðum.

Þar fara fjöl­skyldur saman með nest­is­box, tjald­stóla, regn­hlíf og allir i góðum fíl­ing.

Þar að auki er miða­verð þar stillt i hóf, þannig fjöl­skyldur hafa efni á að geta farið saman.

Að hafa áhyggjur að þvi að fólk fari að nota tjald­stóla og regn­hlifar sem bar­efli er eh nýtt, hvað með allar úti­há­t­iðir, Fiski­dag­ur­inn á Dalvik, versl­un­ar­manna úti­legur, Þjóð­há­tíð i eyjum og svo fram­vegis. Eg alla vega man ekki eftir fréttum af svo­leiðis málum. Og ef ein­hver er svo ílla stemdur að honum langi að berja ein­hvern þá gerir við­kom­andi það hvort sem hann er með regn­hlif eða tjald­stól eða ekki, getur þá rifið upp eitt ,, vöru­bretti,, og hent þvi á ein­hvern!!! Hvaða rugl er þetta eig­in­lega?!!

Eg spyr af hverju er þetta ekki með sama sniði og var i Vagla­skógi, eg veit ekki annað en að þar hafi allt farið vel fram.

Þessar fár­an­legu reglur eru bara til þess að fólk sem er búið að kaupa ser miða , en á ekki gott með að standa lengi, treystir ser ekki i langa bið­röð, það verður að sleppa þvi að fara og tapar pen­ingnum sem það eyddi i miða­kaup.

Það þarf ekki annað en skoða hvað margir eru að reyna að selja mið­ana sína, og fólk farið að selja langt undir helm­ings­verði, svona til að reyna að fá eitt­hvað til baka.

Hafið skömm fyrir þetta Jakob Frímann og aðrir skipu­leggj­endur!!!“

Dagskrá á aðalsviðinu (Dynberg)

Hátíð­ar­svæðið opnar klukkan 11:00, en dag­skrá á sviði er eft­ir­far­andi:

  • 14:00 - 14:20: Opn­un­ar­at­höfn
  • 14:30 - 15:00: KALEO (óraf­magnað / acoustic)
  • 15:10 - 15:40: Stuðmenn
  • 16:00 - 16:30: GDRN
  • 16:45 - 17:15: Mugison
  • 17:30 - 18:15: Helgi Björns
  • 18:30 - 19:15: Hjálmar
  • 19:30 - 20:30: Emilíana Torrini
  • 21:00 - 22:30: KALEO (Aðal­tón­leikar)
  • 22:40 - 23:15: KK
  • 23:30 - 24:00: Júníus Meyvant

Hagnýtar upp­lýs­ingar fyrir gesti

  • Armbönd: Hægt er að nálg­ast tón­leika­arm­bönd fyrir fram í versl­unum 66°Norður (Kringl­unni og Hafn­ar­torgi) eða við brott­för rútna í Kletta­görðum 27 til að flýta fyrir inn­gangi.
  • Sam­göngur: Skipu­lagðar rútu­ferðir ganga frá Kletta­görðum. Viðbúið er að umferð­ar­stýr­ing og tafir verði á Þing­völlum.
  • Reglur á svæð­inu: Ekki er leyfi­legt að koma með regn­hlífar eða eigin áfengi. Hins vegar er leyft að taka með sér nesti.
  • Gisting: Engin tjald­stæði eru í boði á vegum hátíð­ar­innar þar sem um ein­stakan þjóð­garð er að ræða.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi