Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Réðst á stjúpdóttur sína með pitsuskera

Tók hana einnig háls­taki og hristi hana

Réðst á stjúpdóttur sína með pitsuskera
Hér­aðs­dómur Norð­ur­lands vestra Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Skjáskot/ja.is

Hér­aðs­dómur Norð­ur­lands vestra hefur dæmt konu á sex­tugs­aldri í tveggja mán­aða fang­elsi fyrir brot í nánu sam­bandi og lík­ams­árás gegn dóttur sam­býl­is­manns síns og annarri konu. Refs­ingin var skil­orðs­bundin til tveggja ára.

Samkvæmt dómnum áttu brotin sér stað á heim­ili kon­unnar dag­ana 30. júní til 2. júlí árið 2025. Konan var ákærð fyrir að hafa skapað við­var­andi ógnar­á­stand gagn­vart stjúp­dóttur sam­býl­is­manns síns með hót­unum, skömmum og ofbeldi.

Í ákæru kom fram að konan hefði meðal ann­ars kallað brota­þola ítrekað niðr­andi nöfnum, þar á meðal „fucking bitch“, elt hana um heim­ilið og áreitt hana með ókvæð­is­orðum. Daginn eftir hafi hún kastað síma sem hæfði brota­þola í mag­ann, kastað pit­sa­kassa í hana og tekið hana háls­taki áður en hún hristi hana.

Þegar önnur kona reyndi að ganga á milli hafi ákærða ýtt eða slegið til hennar. Brota­þol­arnir flúðu í kjöl­farið út úr íbúð­inni en ákærða elti þær, braut rúðu í for­stofu­hurð og kastaði stórum pitsu­skera í átt að þeim þegar þær voru komnar út á bílaplan og fengu þær báðar mar­blett.

Að morgni 2. júlí reyndi konan jafn­framt að brjóta sér leið inn í stofu íbúð­ar­innar þar sem brota­þol­arnir höfðu læst sig inni og reyndi að veit­ast að annarri þeirra í gegnum rifur á hurð.

Ákærða mætti ekki fyrir dóm þegar málið var þing­fest og boð­aði engin for­föll. Var því litið svo á að hún við­ur­kenndi hátt­sem­ina. Dómurinn taldi sök hennar sann­aða og dæmdi hana til tveggja mán­aða fang­elsis, skil­orðs­bundið til tveggja ára. Þá var henni gert að greiða 60 þús­und krónur í sak­ar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi