Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sumargrillið hækkar í verði

Í verð­sam­an­burði er miðað við hillu­verð sem neyt­andi hefur upp­lýs­ingar um í versl­un­inni.

Sumargrillið hækkar í verði
Sam­an­tektin sýnir því að heim­ili lands­ins þurfa nú að greiða tölu­vert meira fyrir sum­ar­grillið en fyrir aðeins tveimur árum. Mynd: Unsplash/Vincent Keiman

Verð á mat­vöru hækk­aði um 0,3% milli mán­aða sam­kvæmt dag­vöru­vísi­tölu ASÍ. Hækk­un­ar­takt­ur­inn er minni en í upp­hafi árs en jafn­gildir þó um 3,7% árs­hækkun. Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ kann­aði verð í 9 versl­unum dag­ana 8-14. Júní en lesa má nánar um úttekt­ina hér.

Sé þró­unin skoðuð á árs­grund­velli vega þungt áhrif hækk­ana á kjöt­verði og mjólk­ur­vörum. Verð­hækk­anir á kjöt­vörum eru breyti­legar milli teg­unda en mest hefur verð á svína­kjöti hækkað (6,7% milli ára) auk lamba­kjöts (6,2%) og nauta­kjöts (5,5%).

Rúmlega fjórðungshækkun á nautakjöti yfir tveggja ára tímabil

Sé þróun á algengum vörum fyrir sum­ar­grill­veisl­una skoðuð yfir tveggja ára tíma­bil má sjá að verð á kjöt­vörum, eggjum og mjólk­ur­vörum hefur hækkað umtals­vert frá júní 2024 til júní 2026. Mest hefur verð á nauta­kjöti hækkað á tíma­bil­inu, eða um 25,5%. Verð á svína­kjöti hefur hækkað um 17% að með­al­tali og lamba­kjöti um 16%, en hækkun á kjúklinga­kjöti hefur verið minni, eða um 9% að með­al­tali. Verðið á berna­ise sós­unni hækkar einnig í verði yfir tíma­bilið sem rekja má bæði til verð­hækk­ana á eggjum en einnig hefur verð á smjöri hækkað um 9,7% frá sumr­inu 2024.

Sumargrillið hækkar umtalsvert í verði

Áhrif fram­an­greindra verð­hækk­ana má sjá í verð­þróun á vin­sælum grill­vörum og kostar nú mun meira að halda grill­veislu en áður. Verð á vin­sælu grill­kjöti líkt og læris­sneiðum eða grísa­kóti­lettum er nú um 16-17% hærra en áður og hefur grill­kjöt almennt hækkað umtals­vert frá sumr­inu 2024. Að bjóða uppá grill­aðar pylsur með öllu sem dæmi kostar að jafn­aði 10,8% meira sum­arið 2026 en sum­arið 2024. Tilbúnar sósur og ýmsar aðrar vörur sem oft enda á grill­borð­inu hafa einnig tekið hækk­unum, en þó sumar mun minna en aðrar. Sem dæmi má sjá að Gunnars pip­ar­rót­arsósa hefur ein­ungis hækkað um 6% í verði frá 2024 en SS pylsusinn­epið um 17% frá 2024.

Sam­an­tektin sýnir því að heim­ili lands­ins þurfa nú að greiða tölu­vert meira fyrir sum­ar­grillið en fyrir aðeins tveimur árum.

Um könnunina

Verð voru sótt úr úr nýj­ustu verð­töku ASÍ fyrir júní mánuð. Bornar eru saman sömu vörur milli ára hér er því aðeins um beinan verð­sam­an­burð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjón­ustu sölu­að­ila.

Í verð­sam­an­burði er miðað við hillu­verð sem neyt­andi hefur upp­lýs­ingar um í versl­un­inni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/til­boðs­verð af merktu verði við kassa var skráð afslátt­ar­verð.

Öll verð ásamt nýj­ustu verðum geta neyt­endur nálg­ast í Nappinu eða á ver­dlags­eft­ir­lit.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi