Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Róbert og Valgeir dæmdir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás

Fórn­ar­lambið þurfti síðar að gang­ast undir aðgerð þar sem sett voru skrúfur og plata

Róbert og Valgeir dæmdir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás
Aust­ur­stræti Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Róbert Vattnes Mbah Nto og Valgeir Viðar Jak­obs­son hafa verið dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir sér­stak­lega hættu­lega lík­ams­árás sem átti sér stað í mið­borg Reykja­víkur aðfara­nótt 20. apríl 2024.

Samkvæmt nið­ur­stöðu dóms­ins hljóp Róbert á eftir manni eftir að átök höfðu brot­ist út við Aust­ur­stræti. Hann hrinti mann­inum þannig að hann féll fram fyrir sig og lenti illa á höndum sínum. Í kjöl­farið veitt­ust Róbert og Valgeir að honum með höggum og spörkum þar sem hann lá á jörð­inni. Á örygg­is­mynda­vélum sem lagðar voru fram í mál­inu sást meðal ann­ars hvernig Valgeir spark­aði í höfuð manns­ins eftir að hann hafði náð að setj­ast upp.

Brota­þol­inn hlaut alvar­legt mél­brot á vinstri úln­lið sem náði inn í lið og þurfti síðar að gang­ast undir aðgerð þar sem sett voru skrúfur og plata í hönd­ina. Fyrir dómi kom fram að hann hefði enn ekki náð fullum bata og lík­legt væri að hann myndi búa við var­an­lega skerð­ingu á hreyfi­getu úln­liðs­ins. Þá hefði hann verið óvinnu­fær um tíma vegna áverk­anna.

Valgeir var einnig sak­felldur fyrir að hafa slegið annan mann í and­litið með krepptum hnefa. Við höggið féll mað­ur­inn til jarðar, missti með­vit­und og hlaut heila­hrist­ing. Dómurinn taldi sannað að afleið­ingar árás­ar­innar hefðu verið af völdum höggs­ins sem Valgeir veitti.

Róbert var jafn­framt sak­felldur fyrir fíkni­efna­laga­brot eftir að lög­regla fann 2,23 grömm af kóka­íni í fórum hans við hand­töku. Hann ját­aði þann ákæru­lið ský­laust.

Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn meðal ann­ars til þess að árásin hefði verið framin í félagi og beinst að manni sem lá varn­ar­laus á jörð­inni. Þá var sér­stak­lega litið til þess að spark í höfuð telj­ist afar hættu­leg aðferð sem geti valdið lífs­hættu­legum áverkum. Til mild­unar var tekið til­lit til þess að nokkur dráttur hefði orðið á með­ferð máls­ins.

Róbert Vattnes Mbah Nto var dæmdur í níu mán­aða fang­elsi og Valgeir Viðar Jak­obs­son í tólf mán­aða fang­elsi. Fulln­ustu beggja dóma var þó frestað og falla þeir niður að tveimur árum liðnum haldi menn­irnir skil­orð. Jafn­framt voru þeir dæmdir til að greiða brota­þol­anum sam­eig­in­lega 600 þús­und krónur í miska­bætur auk vaxta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag