Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af nokkrum málum í gærkvöldi og nótt, þar á meðal umferðarlagabrotum, líkamsárás, þjófnaði og innbroti.
Tilkynnt var um slys í strætisvagni í miðbæ Reykjavíkur. Ekki liggja fyrir upplýsingar um umfang meiðsla en málið var skráð hjá lögreglu.
Í sama hverfi var ökumaður handtekinn grunaður um ölvunarakstur.
Þá barst tilkynning um þjófnað á skartgripum í Hafnarfirði.
Í Kópavogi var einn aðili kærður fyrir stórfellda líkamsárás.
Einnig í Kópavogi var ökumaður kærður fyrir akstur sviptur ökurétti.
Loks var tilkynnt um innbrot í Kjós.





















Athugasemdir