Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lést eftir fall af svölum á hjúkrunarheimili

Svona hörmu­legt atvik fer auð­vitað í ákveðið grein­ing­ar­ferli

Lést eftir fall af svölum á hjúkrunarheimili
Nú stendur yfir vinna við að fara yfir alla verk­ferla og meta hvort ástæða sé til að grípa til frek­ari örygg­is­ráð­staf­ana Mynd: Skjáskot/ja.is

Miðlæg rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur til rann­sóknar and­lát aldr­aðrar konu sem lést eftir að hafa fallið fram af svölum á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Eir í Graf­ar­vogi. Útkallið barst sunnu­dag­inn 28. júní sl. og benda fyrstu vís­bend­ingar til þess að um hörmu­legt slys hafi verið að ræða segir í frétt Vísi sem greindi fyrst frá.

Að sögn Grétars Stef­áns­sonar, aðal­varð­stjóra á lög­reglu­stöð fjögur, var mál­inu vísað til mið­lægrar rann­sókn­ar­deildar í sam­ræmi við hefð­bund­inn feril þegar alvar­leg slys eiga sér stað. Agnes Eide Krist­ín­ar­dóttir, yfir­lög­reglu­þjónn á deild­inni, stað­festir að ekk­ert bendi til ann­ars en að um slysni hafi verið að ræða.

Stuðningur við starfsfólk


Eybjörg Hauks­dóttir, for­stjóri Eirar, segir að starfs­fólk hafi þegar í stað kallað til við­bragðs­að­ila og lög­reglu þegar atvikið átti sér stað. Embætti land­læknis var sömu­leiðis til­kynnt um málið og var áfallateymi Rauða kross­ins fengið til að styðja við það starfs­fólk sem var á vakt.

„Svona hörmu­legt atvik fer auð­vitað í ákveðið grein­ing­ar­ferli hér inn­an­húss út frá örygg­is­málum,“ segir Eybjörg. Hún tekur fram að hvorki hún né aðrir starfs­menn minn­ist þess að sam­bæri­legt slys hafi áður átt sér stað á heim­il­inu.

Ekki um lokaða deild að ræða


For­stjór­inn leggur áherslu á að hjúkr­un­ar­heim­ili séu fyrst og fremst heim­ili fólks. Deildin sem konan dvaldi á var ekki skil­greind sem lokuð deild. Nú stendur yfir vinna við að fara yfir alla verk­ferla og meta hvort ástæða sé til að grípa til frek­ari örygg­is­ráð­staf­ana á svölum eða sam­eig­in­legum svæðum.

Að sögn for­stjóra ríkir mikil sorg á vinnu­staðnum og eru sam­úð­ar­kveðjur sendar til aðstand­enda hinnar látnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi