Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Læknar glíma við upplýsingaskort

Heil­brigði manna, dýra og umhverfis er talið órjúf­an­lega tengt

Læknar glíma við upplýsingaskort
Í til­búnum sjúkra­til­fellum sem lögð voru fyrir þátt­tak­endur kusu margir læknar að velja lyf með minni umhverf­is­á­hrif, jafn­vel þótt þau væru klínískt áhrifa­minni en önnur val­mögu­leikar. Mynd: Samsett mynd/Hi.is

Meiri­hluti íslenskra lækna telur umhverf­is­mál mik­il­væg en skortur á upp­lýs­ingum hamlar vist­vænni lyfja­vali.

Ný íslensk rann­sókn sýnir að tæp­lega þrír af hverjum fjórum læknum telja umhverfis- og lofts­lags­mál mik­il­væg. Þetta er fyrsta rann­sóknin sem gerð hefur verið hér á landi á við­horfum íslenskra lækna til umhverf­is­á­hrifa lyfja. Nið­ur­stöð­urnar benda til þess að mik­ill vilji sé til að huga að umhverf­is­sjón­ar­miðum, en í praxís skili það sér illa vegna skorts á aðgengi­legum upp­lýs­ingum.

Rann­sóknin var fram­kvæmd sem lýsandi þver­sniðs­könnun meðal með­lima í Lækna­fé­lagi Íslands í lok árs 2025. Alls fengu 1.543 læknar spurn­inga­list­ann sendan og luku 163 þeirra svörun. Að rann­sókn­inni stóðu Hjalti Már Björns­son, dós­ent við Lækna­deild, Freyja Jóns­dóttur, dós­ent við Lyfja­fræði­deild, Salóme Ásta Arn­ar­dóttir heim­il­is­læknir og Johanna Villén lyfja­fræð­ingur segir í grein um rann­sókn­ina inn á vef HI.

Vaxandi meðvitund en gjá á milli vilja og verka

Helstu nið­ur­stöður sýna að 73% þátt­tak­enda telja umhverfis- og lofts­lags­mál mik­il­væg eða frekar mik­il­væg. Sýna læknar því ríkan skiln­ing á svo­kall­aðri „Einnar heilsu nálgun“ (e. One Health) Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, þar sem heil­brigði manna, dýra og umhverfis er talið órjúf­an­lega tengt.

Í til­búnum sjúkra­til­fellum sem lögð voru fyrir þátt­tak­endur kusu margir læknar að velja lyf með minni umhverf­is­á­hrif, jafn­vel þótt þau væru klínískt áhrifa­minni en önnur val­mögu­leikar. Þrátt fyrir þennan skýra vilja sögð­ust aðeins um 7% lækna taka umhverf­is­á­hrif oft eða alltaf með í reikn­ing­inn þegar kemur að raun­veru­legu lyfja­vali fyrir sjúk­linga í dag­legu starfi.

Kalla eftir auknu gagnsæi frá lyfjafyrirtækjum

Nið­ur­stöð­urnar varpa ljósi á að helsta fyr­ir­staðan sé upp­lýs­inga­skortur. Sára­lít­ill hluti lækna hafði kynnt sér umhverf­is­á­hrif lyfja í íslenskum eða erlendum upp­lýs­inga­kerfum. Samhliða kom fram ríkur stuðn­ingur meðal lækna við stefnu­mót­andi aðgerðir til úrbóta, og þá sér­stak­lega að lyfja­fyr­ir­tæki verði skylduð til að birta opin­ber­lega umhverf­is­gögn um lyf sín.

Lyf og lyfja­leifar finn­ast nú þegar í ferskvatni og sjó víða um heim, þar á meðal á Íslandi, þar sem mælst hafa leifar af kyn­horm­ónum, sýkla­lyfjum og geð­lyfjum. Lyfja­notkun hefur einnig nei­kvæð áhrif á lofts­lagið vegna útblást­urs við fram­leiðslu og dreif­ingu, auk efna í inn­önd­un­ar­lyfjum og notk­unar svæf­ing­argasa.

Aðstand­endur rann­sókn­ar­innar telja nið­ur­stöð­urnar sýna vax­andi með­vit­und lækna en skortur á upp­lýs­inga­gjöf og flokk­un­ar­kerfum, líkt og þróuð hafa verið í nágranna­lönd­unum, hamli því að ekki sé nægi­lega mikið tekið tillum­hverf­is­sjón­ar­mið við ákvörð­un­ar­töku og lyfja­á­vís­anir á Íslandi. Er rann­sókn­inni ætlað að leggja grunn að frek­ari stefnu­mótun og umræðu um sjálf­bærni í íslenskri heil­brigð­is­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi