Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af mung baunum frá Golden Chef sem Fiska/Lagsmaður flytur inn, en í vörunni greindust leifar af varnarefninu haloxyfop sem er óeyfilegt að nota í Evrópu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF).
Málið uppgötvaðist í kjölfar sýnatöku sem er hluti af reglubundnu eftirliti með varnarefnaleifum í matvælum.
Neytendur skulu ekki neyta vörunnar heldur farga henni eða skila til verslunarinnar til að fá endurgreitt.

Mynd: MAST































Athugasemdir