Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Sat áður inni fyrir mann­dráp­stil­raun

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Dómurinn yfir Lárusi er skil­orðs­bund­inn Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt Lárus Má Her­manns­son í 30 daga skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að ráð­ast á lög­reglu­mann í fanga­geymslu lög­reglu­stöðv­ar­innar við Hverf­is­götu í Reykja­vík aðfara­nótt 3. febr­úar 2024.

Samkvæmt dómnum var Lárus hand­tek­inn vegna ann­ars máls og var þá undir veru­legum áhrifum áfengis. Þegar lög­reglu­menn voru að færa hann inn í fanga­klefa streitt­ist hann á móti, setti hendur á milli hurðar og stafs og veitt­ist síðan að lög­reglu­manni. Hann sló til lög­reglu­manns­ins, reif fjar­skipta­búnað af höfði hans og olli rispu aftan á hálsi hans.

Lárus neit­aði fyrir dómi að hafa ætlað að meiða lög­reglu­mann­inn. Hann sagð­ist hafa fallið á áfeng­is­bind­indi sínu eftir átta ára edrú­mennsku vegna erf­iðra aðstæðna í kjöl­far and­láts móður sinnar og muna lítið sem ekk­ert eftir atvik­unum. Hann við­ur­kenndi þó að hafa reynt að koma í veg fyrir að fanga­klef­anum yrði lokað og sagð­ist hafa fundið fyrir inni­lok­un­ar­kennd.

Dómurinn taldi hins vegar fram­burð þriggja lög­reglu­manna trú­verð­ugan og studdan eft­ir­lits­mynda­vélum úr fanga­geymsl­unni. Þar sjá­ist ákærði slá í átt að lög­reglu­mann­inum áður en hann var yfir­bug­aður og færður aftur inn í klef­ann.

Við ákvörðun refs­ingar leit dóm­ur­inn meðal ann­ars til þess að rúm tvö ár voru liðin frá atvik­inu og að dráttur á með­ferð máls­ins væri ekki þeim ákæra að kenna. Einnig var litið til þess að hann hefði ekki gerst sekur um önnur brot frá því atvikið átti sér stað.

Refs­ingin var því ákveðin 30 daga fang­elsi en fulln­ustu hennar frestað til tveggja ára, að því gefnu að hann haldi almennt skil­orð. Þá var honum gert að greiða verj­anda sínum, Vil­hjálmi H. Vil­hjálms­syni lög­manni, 706.800 krónur í málsvarn­ar­laun.

Sat áður inni fyrir manndrápstilraun

Lárus Már var árið 2005 dæmur fyrir til­raun til mann­dráps en þá hafði hann veist að fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sinni með felgu­lykli og veitt henni alvar­lega áverka á höfði, á heim­ili hennar á Akranesi.

Hlaut Lárus Már fimm og hálfs ár fang­elsi og var fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu hans greiddar 700.000 krónur í miska­bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi