Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Stökk í á eftir að hafa hegðað sér und­ar­lega

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Connor Murphy Murphy drukkn­aði í Taílandi Mynd: Instagram-skjáskot

Connor Murphy, áhrifa­valdur á sviði lík­ams­ræktar og svo­kall­aðs looksmaxxing, er sagður hafa lát­ist eftir slys í Taílandi. Hann var 32 ára gam­all.

Samkvæmt taí­lenska miðl­inum Thai Rath kom Murphy með leigu­bíl að lúxus­í­búða­hverfi á þriðju­dag og er sagður hafa sýnt óvenju­lega og óút­reikn­an­lega hegðun. Hann hafi reynt að kom­ast inn í annan bíl, en öku­mað­ur­inn neitað vegna fram­komu hans. Í kjöl­farið hafi Murphy orðið æstur og byrjað að hrópa.

Íbúar á svæð­inu köll­uðu á lög­reglu en þegar lög­reglu­menn komu á vett­vang er Murphy sagður hafa flúið í gegnum hverfið og stokkið út í stöðu­vatn. Þar synti hann þar til hann örmagn­að­ist og drukkn­aði að sögn yfir­valda.

Kafarar frá Poh Teck Tung Foundation leit­uðu að Murphy í um hálf­tíma áður en þeir fundu lík hans og komu því á land.

Kærasta Murphys, sem ræddi við fjöl­miðla undir dul­nefni, sagði að ekk­ert hefði bent til þess að eitt­hvað amaði að honum og kvaðst aldrei hafa séð hann neyta fíkni­efna.

Í frétt Thai Rath kemur þó fram að leigu­hús­næði hans hafi verið alsett máln­ing­ar­slettum. Þá fundu lög­reglu­menn frá Bang Phli-lög­reglu­stöð­inni tvær ónot­aðar sprautur í bif­reið hans auk óþekktra hvítra taflna.

Rannsókn á til­drögum máls­ins stendur yfir.

Murphy varð þekktur um miðjan síð­asta ára­tug á YouTube, þar sem hann birti mynd­bönd um vaxt­ar­rækt og lík­ams­rækt. Hann lýsti sjálfum sér gjarnan sem „giga chad“, sem er slangur yfir karl­mann sem þykir mjög sjálfsör­uggur og í fram­úr­skar­andi lík­am­legu formi.

Connor MurphyÞetta er ekki gervi­greind­ar­mynd

Hann átti sam­tals um 2,6 millj­ónir fylgj­enda á Instagram og YouTube.

Hér má sjá mynd­skeið af slys­inu en við­kvæmir eru var­aði við myndefn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta