Matvælastofnun varar neytendur sem eru með ofnæmi eða óþol fyrir mjólk við neyslu á Stjörnu prótein poppi með Salted Caramel-bragði, þar sem varan inniheldur mjólk sem ekki kemur fram í innihaldslýsingu.

Framleiðandinn, Iðnmark hf., hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF), ákveðið að innkalla vöruna.
Innköllunin tekur til eftirfarandi framleiðslulota:
- Vörumerki: Stjörnu
- Vöruheiti: Prótein popp Salted Caramel
- Framleiðandi: Iðnmark hf.
- Framleiðsluland: Ísland
- Best fyrir dagsetningar: 5. október 2026, 20. október 2026 og 3. nóvember 2026
Varan hefur verið seld í verslunum Krónunnar, Hagkaups og Samkaupa.
Matvælastofnun hvetur neytendur sem eru með mjólkurofnæmi eða mjólkuróþol til að neyta vörunnar ekki. Þeim er ráðlagt að farga henni eða skila henni í verslun þar sem hún var keypt og fá endurgreiðslu.





















Athugasemdir