Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þetta var innanbúðarverk“

Ekkja manns­ins sem lést í morð­til­ræð­inu við Trump telur að um sam­særi sé að ræða.

„Þetta var innanbúðarverk“
Trump stuttu eftir til­ræðið Ekkjan telur brögð vera í tafli Mynd: REBECCA DROKE / AFP

Ekkja fyrr­ver­andi slökkvi­liðs­stjór­ans Corey Comperatore, sem lét lífið í mis­heppn­aðri morð­til­raun á Donald Trump í Butler í Penn­syl­vaníu árið 2024, seg­ist sann­færð um að víð­tækt sam­særi hafi legið að baki árásinni.

Helen Comperatore ræddi málið í við­tali við NewsNation og sagði að hún teldi stjórn­völd hafa átt ein­hvern þátt í atburð­inum.

„Ég trúi því að þetta hafi verið inn­an­búð­ar­verk, ein­hvers staðar innan stjórn­kerf­is­ins,“ sagði hún. Þegar hún var spurð hvort hún teldi að um póli­tískt sam­særi hefði verið að ræða svar­aði hún: „Já, algjör­lega.“

Við­mæl­and­inn spurði hvort hún hefði séð ein­hver gögn sem bentu til víð­tækara sam­særis. Hún kvaðst ekki geta lagt fram sönn­un­ar­gögn en sagð­ist hafa fengið upp­lýs­ingar sem hefðu styrkt grun sinn.

„Mér hefur verið sagt ýmis­legt. Svo gerð­ist eitt­hvað hjá mér skömmu eftir árás­ina og þegar maður fer að púsla þessu saman þá meikar þetta allt full­kom­inn sens,“ sagði hún.

Helen seg­ist einnig sann­færð um að árás­armað­ur­inn, hinn tví­tugi Thomas Crooks, hafi ekki staðið einn að verki heldur verið hluti af stærra póli­tísku sam­særi sem hefði það mark­mið að ráða Donald Trump af dögum. Hún nefndi þó enga ein­stak­linga eða hópa sem hún teldi bera ábyrgð.

Engin stað­fest gögn hafa hins vegar komið fram sem styðja full­yrð­ingar um sam­særi að baki árásinni.

Í við­tal­inu skor­aði hún á Trump for­seta að taka rann­sókn máls­ins sjálfur í sínar hendur og sagði að hún myndi ekki finna frið fyrr en þeir sem bæru ábyrgð yrðu dregnir til ábyrgðar.

„Ekki gleyma okkur. Mundu hvað við gengum í gegnum þennan dag. Við erum enn hér og þurfum svör,“ sagði hún og lýsti þeim skila­boðum sem hún myndi senda for­set­anum.

Nú eru tvö ár liðin frá því að byssu­kúla strauk eyra Donalds Trump á kosn­inga­fundi í Butler. Corey Comperatore varð fyrir skoti og lést þegar hann reyndi að verja fjöl­skyldu sína. Árás­armað­ur­inn, Thomas Crooks, var skot­inn til bana af örygg­is­sveitum á vett­vangi.

Þrátt fyrir umfangs­mikla rann­sókn hefur enn ekki tek­ist að skýra hver hvati Crooks var. Hann skildi hvorki eftir sig stefnu­yf­ir­lýs­ingu né aðra skýr­ingu á verkn­að­inum og tak­mörkuð umsvif hans á net­inu hafa gert rann­sókn­ina erf­ið­ari.

Í nýrri skýrslu eft­ir­lits­að­ila stjórn­valda kemur fram að meg­in­skýr­ing mis­tak­anna hafi verið alvar­legir ann­markar í vinnu­brögðum banda­rísku leyni­þjón­ust­unnar. Samkvæmt skýrsl­unni bár­ust stofn­un­inni aldrei 102 til­kynn­ingar sem sendar voru í gegnum tal­stöðvakerfi lög­reglu um grun­sam­legan mann sem síðar reynd­ist vera Crooks.

Helen Comperatore segir óskilj­an­legt að ekki hafi verið brugð­ist við strax.

„Af hverju? Af hverju hefði ekki átt að bregð­ast við eftir fyrstu til­kynn­ing­una? Ef þeir hefðu ein­fald­lega haldið Trump frá svið­inu væri ég ekki hér að ræða þetta í dag,“ sagði hún.

Hún gagn­rýndi jafn­framt leyni­þjón­ust­una harð­lega og sagði stofn­un­ina hafa brugð­ist á öllum stigum.

„Þeir gerðu allt vit­laust. Þeir hlust­uðu ekki á tal­stöðv­arnar og sam­skiptin voru engin,“ sagði hún.

Ekkjan sagði einnig að eng­inn frá leyni­þjón­ust­unni hefði haft sam­band við hana fyrr en sum­arið 2025, tæpu ári eftir árás­ina, og að hún hefði enn ekki fengið full­nægj­andi svör við spurn­ingum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta