Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ugla Stefanía óttast hatursglæpi á Íslandi eftir voðaverkið í Berlín

„Fólk bók­staf­lega fagnar þessu“

Ugla Stefanía óttast hatursglæpi á Íslandi eftir voðaverkið í Berlín
Ugla Stefanía Ugla hefur áhyggjur Mynd: Móa Hjartardóttir

Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir segir voða­verkið sem varð í gleði­göng­unni í Berlín í gær hafa vakið mik­inn ótta meðal hinsegin fólks. Í Facebook-færslu sem hún birti í kjöl­far árás­ar­innar segir hún hafa þurft að hafa sam­band við nána vini sína í Berlín til að ganga úr skugga um að þeir væru á lífi.

Að minnsta kosti einn lést og fjöl­margir slös­uð­ust þegar 21 árs gam­all maður ók bíl inn í gleði­göng­una.

„Í morgun þurfti ég að hafa sam­band við nána vini mína í Berlín til að kanna hvort þau væru á lífi. Það þurfti ég að gera vegna þess að 21 árs strákur keyrði bíl inní Pride göngu í Berlín, þar sem minnsta kosti ein mann­eskja lét lífið og fullt af fólki slas­að­ist.“

Ugla bendir á að fyrir skömmu hafi tveir menn verið kærðir á Íslandi fyrir að skipu­leggja hryðju­verk og segir að meðal þess sem hafi komið fram í mál­inu hafi verið áform um sam­bæri­lega árás.

Hún segir voða­verk af þessu tagi ekki verða til af sjálfu sér heldur í sam­fé­lagi þar sem hat­urs­orð­ræða gegn hinsegin fólki fær að dafna.

„Svona voða­verk eiga sér ekki stað í tóma­rúmi. Þeir verða til í sam­fé­lagi og orð­ræðu á sam­fé­lags­miðlum þar sem hinsegin fólk er skrímsla­vætt, afmennskað og gert að ógn. Þar sem áhrifa­valdar normalísera for­dóma og hatur. Þar sem fólk í áhrifa­stöðum og í stjórn­málum talar niður mik­il­vægi sam­stöðu, regn­boga­fána og stuðn­ing við ungt hinsegin fólk. Þar sem skemmd­ar­verk eru framin við fagn­að­ar­læti virkra í athuga­semdum.“

Með færsl­unni birtir Ugla skjá­skot úr athuga­semda­kerfum við fréttir af árásinni þar sem sjá má fjölda hlát­ur­tákna.

„Við fréttir um málið eru margir sem setja hlát­ur­skall við, og enn fleiri sem kommenta að fólkið hafi átt þetta skilið og að þeim hafi verið nær. Þar er líka fólk sem bók­staf­lega fagnar þessu. Meðal þeirra eru Íslend­ingar sem koma fram undir fullu nafni.“

Ugla segir það því ekki skrýtið að hinsegin fólk velti því fyrir sér hvort sam­bæri­legur hat­urs­glæpur geti orðið að veru­leika á Íslandi.

„Það er því ekki skrítið að hinsegin fólk spyrji sig hvort það sé tíma­spurs­mál þangað til svona ger­ist hér á Íslandi. Þangað til öfga­væð­ingin og radíkalís­er­ingin geri það að verkum að ein­hver verði nógu sjúkur til að láta til skarar skríða.“

Hún segir umræð­una hér á landi síð­ustu miss­eri um mál­efni hinsegin fólks, ásamt skemmd­ar­verkum á regn­boga­fánum og við Graf­ar­vogs­kirkju, vera hluta af þeirri þróun sem valdi ótta innan sam­fé­lags­ins.

Í lok færsl­unnar hvetur Ugla fólk til að hug­leiða hvert íslenskt sam­fé­lag stefni, sér­stak­lega í aðdrag­anda Hinsegin daga.

„Ef við kveðum ekki niður þá for­dóma og það bakslag sem hefur blossað upp hér­lendis þá erum við að stefna rak­leiðis á þann stað að þurfa að horfa upp á alvar­lega hat­urs­glæpi og voða­verk raun­ger­ast. Baráttan heldur svo sann­ar­lega áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi