Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mannskæð skothríð á matarhátíð

Lög­reglan leitar að seinni byssu­mann­inum

Mannskæð skothríð á matarhátíð
Tveir menn hófu skot­bar­daga á miðri mat­ar­há­tíð í Seattle Einn í haldi en lýst eftir öðrum byssu­mann­inum Mynd: Daily Mail

Þrír ein­stak­lingar eru látnir og fjórir særðir, þar á meðal tveggja ára barn, eftir að tveir byssu­menn hófu skot­hríð á milli sín á miðri mat­ar­há­tíð­inni Bite of Seattle í gær­kvöldi. Atburð­ur­inn átti sér stað við Seattle Center í skugga Space Needle-turns­ins um klukkan 18:00 að stað­ar­tíma.

Skotbardagi á almannafæri

Á fjöl­miðla­fundi seint í gær­kvöldi stað­festi Tyrone Davis, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri í Seattle, að atburð­ur­inn hafi ekki verið skyndi­leg árás á hóp­inn, heldur upp­gjör á milli tveggja ein­stak­linga. „Við teljum að þarna hafi tveir menn verið að skjóta hvor á annan,“ sagði Davis.

Lög­reglu­stjór­inn bætti því við að tvær skamm­byssur hefðu fund­ist á vett­vangi. Hann full­viss­aði almenn­ing um að rann­sóknin mið­aði vel og að svo stöddu væri ekki talið að frek­ari hætta steðj­aði að íbúum eða gestum borg­ar­innar. Davis benti jafn­framt á að Bite of Seattle hafi jafnan verið frið­sam­legur og fjöl­skyldu­vænn við­burður og engin alvar­leg atvik hafi komið upp þar í mörg ár.

Sjónarvottar lýsa algjöru öngþveiti

Hátíðin dregur að sér um 350.000 gesti árlega og var svæðið þétt­skipað þegar skot­hríðin hófst. Sjón­ar­vottar lýsa því hvernig hátíð­ar­stemn­ing breytt­ist á auga­bragði í lífs­hættu­legan stað.

Hinn 25 ára gamli Estan Wakonabo, sem stóð í röð ásamt kær­ustu sinni, lýsti því að fólk hefði skyndi­lega byrjað að hrinda og hlaupa. „Fólk fann sér felu­staði, hrinti hverju öðru og féll til jarðar. Barna­vagnar ultu um koll“ sagði Wakonabo í sam­tali við The Seattle Times.

Myndbönd á sam­fé­lags­miðlum sýna fjölda manns klifra yfir girð­ingar og flýja í inn í and­dyri Space Needle og nær­liggj­andi söfn. Hin 49 ára Rachel Costa, ferða­maður frá Brasilíu, sagð­ist aldrei hafa upp­lifað aðra eins hræðslu. Hún kom sér inni í sýn­ing­ar­skála ásamt um tutt­ugu öðrum gestum þar til lög­reglan lýsti svæðið öruggt.

Paul Skinner, sem vann á einum af fjöl­mörgu mat­ar­bás­unum, sagði að hljóðið hefði fyrst minnt á flug­elda. En þegar fólks­fjöld­inn tók að hreyfa sig eins og sturluð hjörð hafi fólk skollið niður á gólf mat­ar­básanna til að leita skjóls.

Umsátur og leitin að seinni mann­inum

Annar grun­aði byssu­mað­ur­inn var hand­tek­inn á vett­vangi fljót­lega eftir að lög­reglan mætti, en nafn hans hefur ekki enn verið gefið út. Borg­ar­yf­ir­völd leið­réttu fyrri til­kynn­ingar um að tveir væru í haldi og stað­festu að víð­tæk leit standi yfir að seinni mann­inum.

Lög­reglan lýsir mann­inum sem „ungum ein­stak­lingi“. Sérsveit lög­regl­unnar í Washington-ríki (SWAT) og alrík­is­lög­reglan (FBI) aðstoða nú við leit­ina. Lög­reglu­menn hafa farið yfir öll mynd­skeið úr eft­ir­lits­mynda­vélum á svæð­inu, þótt SPD hafi tekið fram að engar örygg­is­mynda­vélar hafi vísað beint að sjálfum staðnum þar sem skotin riðu af. Leit­ar­svæðið hefur verið stækkað út fyrir mið­borg Seattle og er almenn­ingur beð­inn um að sýna aðgát og til­kynna alla grun­sam­lega manna­ferðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta