Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Branson segir heiminn betur settan með Höllu sem forseta

„Svo dásam­legt að hitta vin­konu mína“

Branson segir heiminn betur settan með Höllu sem forseta
Halla og Richard Halla virð­ist hafa fært vini sínum afmæl­is­gjöf en hann átti afmæli 18. júlí. Mynd: Facebook

Breski millj­arða­mær­ing­ur­inn Richard Branson fer fögrum orðum um Höllu Tóm­as­dóttur, for­seta Íslands, í nýrri færslu á sam­fé­lags­miðlum. Þar segir hann að heim­ur­inn sé betur settur með Höllu í emb­ætti for­seta, þótt The B Team hafi misst einn besta fram­kvæmda­stjóra sem sam­tökin hafi haft. Þau virð­ast hafa hist á dög­unum á Íslandi en með færsl­unni birtir Branson ljós­myndir sem teknar voru nýlega. Skrifar hann í upp­hafi færsl­unnar:

„Svo dásam­legt að hitta vin­konu mína, fyrr­ver­andi sam­starfs­konu og for­seta Íslands, Höllu Tóm­as­dóttur.“

Branson rifjar upp að Halla hafi haft sam­band við sig þegar hún gegndi starfi for­stjóra The B Team, sem hann var meðal stofn­enda að, og beðið um mán­að­ar­leyfi til að bjóða sig fram til for­seta Íslands. Hún hafi þá aðeins mælst með tvö pró­sent fylgi.

„Ég sagði í gríni: „Gangi þér vel – þá sé ég þig eftir mánuð!““ skrifar Branson og bætir við að hann hafi haft rangt fyrir sér. Halla hafi unnið kosn­ing­arnar og dafnað í emb­ætti. „Þótt við höfum misst einn besta for­stjóra sem við höfum nokkru sinni haft er heim­ur­inn betur settur með Höllu sem for­seta,“ segir hann.

Tengsl Branson við Epstein

Branson hefur á und­an­förnum árum þó einnig verið í sviðs­ljós­inu vegna fyrri sam­skipta sinna við Jeffrey Epstein. Nafn hans kom fyrir í þónokkrum gögnum sem birt voru úr Epstein-rann­sókn­inni og sýndu meðal ann­ars tölvu­pósta­skipti þeirra frá árinu 2013 en þar má sjá að nokkuð hlýtt var á milli þeirra.

Í þeim tölvu­pósti leggur Branson til hvernig Bill Gates gæti varið Epstein opin­ber­lega. Hann stingur upp á að Gates segði að Epstein hefði verið „frá­bær ráð­gjafi“, að hann hefði „mis­stigið sig“ fyrir mörgum árum með því að sofa hjá 17 og hálfs árs konu, hefði tekið út refs­ingu sína og lært af mis­tök­unum. Þá skrifar Branson einnig að ekk­ert væri athuga­vert við að Epstein, sem ein­hleypur maður, hefði dálæti á konum.

Í sama pósti býður Branson Epstein að heim­sækja sig á ný og skrifar meðal ann­ars: „Það var virki­lega gaman að sjá þig í gær. Strák­arnir í vatna­í­þrótt­unum geta ekki hætt að tala um heim­sókn­ina! Komdu endi­lega aftur þegar þú átt leið um. Svo lengi sem þú kemur með kvenna­búrið þitt!“

Branson og EpsteinMillj­arða­mær­ing­arnir á góðri stundu

Virgin Group hefur ítrekað hafnað því að Branson hafi átt náin tengsl við Epstein. Fyr­ir­tækið segir sam­skiptin hafa verið tak­mörkuð við fáein tæki­færi í við­skipta- og góð­gerð­ar­sam­hengi og að Branson hafi slitið öllum tengslum við Epstein eftir að áreið­an­leika­könnun vegna fyr­ir­hug­aðs styrks leiddi í ljós alvar­legar ásak­anir á hendur honum. Þá hefur Branson lýst gjörðum Epsteins sem „við­ur­styggi­legum“ og sagst styðja rétt fórn­ar­lamba hans til rétt­lætis. Þá sagði í til­kynn­ingu frá Branson að hann hafi átt við þrjár full­orðnar konur úr starfsteymi Epsteins þegar hann tal­aði um kvenna­búrið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi