Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stór hluti Evrópu gæti staðið í ljósum logum í ágúst

Gæti orðið versta gróð­ur­elda­sumar í sögu Evrópu

Stór hluti Evrópu gæti staðið í ljósum logum í ágúst
Evrópa brennur Maður horfir á gróð­ur­elda á Spáni Mynd: JOSE JORDAN / AFP

Um 350 þús­und manns hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín vegna gróð­ur­elda sem geisa víða um Evrópu. Verst er ástandið á Spáni og í Frakk­landi en ferða­mönnum hefur verið ráð­lagt að forð­ast þau svæði sem hafa orðið verst úti. Á Madrid­ar­svæð­inu einu hafa tæp­lega 90 þús­und manns verið fluttir á brott.

Eldarnir eru sagðir alger­lega stjórn­lausir og sam­kvæmt tölum Evr­ópu­sam­bands­ins hafa þegar um 254 þús­und hekt­arar lands brunnið á þessu ári. Það er aðeins skammt frá metár­inu 2025 þegar 270.449 hekt­arar eyðilögð­ust í eldum. Umfang eld­anna árið 2026 er jafn­framt mun meira en með­al­tal fyrri ára.

Sér­fræð­ingar vara nú við því að fjórða hita­bylgjan í sumar sé á leið­inni og að hætta á gróð­ur­eldum muni aukast enn frekar í Grikk­landi, á Ítalíu og víðar í Mið-Evrópu á næstu dögum.

Maria Zuber, sem starfar við sam­hæf­ing­ar­mið­stöð Evr­ópu­sam­bands­ins fyrir neyð­ar­við­brögð (ERCC), segir að ef ekki tak­ist að ráða nið­ur­lögum eld­anna í Portúgal og á Spáni gæti stór hluti Evrópu staðið í ljósum logum í byrjun ágúst.

Hún sagði á blaða­manna­fundi í Brussel að árið 2026 gæti orðið versta elda­sumar í sögu Evrópu.

Mannleg mistök talin eiga stóran þátt

Gróð­ur­eldar geisa nú víða um álf­una. Á Sikiley á Ítalíu hafa um 6.000 slökkvi­liðs­menn barist við eldana und­an­farna daga með vatns­flug­vélum og öðrum bún­aði. Á meg­in­landi Ítalíu hafa að minnsta kosti 160 eldar kviknað og ítölsk yfir­völd telja að mann­leg mis­tök eða íkveikjur séu helsta skýr­ingin.

Portúgal hefur einnig orðið illa úti síð­ustu vikur. Í Oleiros-hér­aði breidd­ust eldar hratt út og stjórn­völd brugð­ust við með lands­vísu­við­vörun. Meðal ann­ars var bannað að kveikja elda og aðgangur að skógum tak­mark­aður.

Eldar á vinsælum ferðamannastöðum

Í Grikk­landi hafa gróð­ur­eldar brot­ist út á vin­sælum ferða­manna­stöðum, meðal ann­ars á Krít og í Þessa­lóníku, næst­stærstu borg lands­ins. Yfirvöld ótt­ast að fleiri eldar geti kviknað á næstu dögum.

Í Skotlandi hefur eldur logað í Cairngorms-þjóð­garð­inum í tólf daga. Yfirvöld segja hætt­una hvergi nærri liðna og að um sé að ræða versta eld sem komið hefur upp á svæð­inu. Talið er að það muni taka ára­tugi að end­ur­heimta nátt­úr­una.

Í Frakk­landi hafa meira en 160 manns verið hand­teknir grun­aðir um að hafa kveikt gróð­ur­elda. Yfirvöld þar hafa lýst ástand­inu sem því alvar­leg­asta frá lokum síð­ari heims­styrj­ald­ar­innar.

Nýjasta ríkið sem hefur orðið fyrir barð­inu á eld­unum er Tyrkland. Þar hefur stór eldur í suð­vest­ur­hluta lands­ins leitt til þess að yfir­völd lok­uðu þjóð­vegi í grennd við vin­sælan ferða­manna­stað.

Búist er við að fjórða hita­bylgja sum­ars­ins gangi yfir Evrópu í næstu viku og sums staðar í Frakk­landi hefur hit­inn þegar farið yfir 40 stig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta