Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Boy George hættir við þátttöku í Jesus Christ Superstar

Söngv­ar­inn hefur orðið fyrir gríð­ar­legri gagn­rýni eftir að hann gaf út lag til stuðn­ings Ísrael.

Boy George hættir við þátttöku í Jesus Christ Superstar
Boy George Popp­ar­inn hefur verið vin­sælli Mynd: Instagram

Breski söngv­ar­inn Boy George hefur dregið sig úr sýn­ingum á söng­leiknum Jesus Christ Superstar í West End í Lundúnum eftir harða gagn­rýni sem fylgdi útgáfu nýs lags þar sem hann lýsir yfir stuðn­ingi við Ísrael.

Fyrr í vik­unni gaf fyrr­ver­andi söngv­ari Culture Club út lagið We Will Dance Again. Í lag­inu gagn­rýnir hann meðal ann­ars þá sem hafa lýst yfir stuðn­ingi við Palest­ínu og segir í upp­haf­slínu þess: „Þú segir þjóð­ar­morð, ég segi stríð. Þegar ráð­ist er á þig, þá er her­inn til þess.“

Síðar í lag­inu við­ur­kennir hann að hern­að­ar­að­gerðir Ísraels hafi orðið „ljótar“, en segir jafn­framt að þær skýrist af því að „þið viljið drepa hvern ein­asta okkar“, með vísan til gyð­inga sem búa í Ísrael.

Útgáfa lags­ins vakti hörð við­brögð og í kjöl­farið til­kynnti umboðs­maður Boy George, Paul Kemsley, að söngv­ar­inn myndi ekki koma fram í Jesus Christ Superstar eins og til stóð.

Boy George átti að fara með hlut­verk Heródesar kon­ungs frá 3. til 15. ágúst.

„Ákvörð­unin var tekin af fyllstu virð­ingu fyrir fram­leið­endum, list­ræna teym­inu og öllum sem koma að sýn­ing­unni,“ skrif­aði Kemsley á Instagram.

Hann sagði Boy George aldrei hafa ótt­ast að standa með eigin sann­fær­ingu en að það væri jafn­framt hlut­verk sitt að taka ákvarð­anir sem væru bæði lista­mann­inum og öðrum fyrir bestu.

„Í þessu til­viki taldi ég rétt að stíga til hliðar þannig að athyglin beind­ist áfram að sýn­ing­unni og að allir gætu haldið áfram í gagn­kvæmri virð­ingu og góðum anda,“ sagði hann.

Kemsley bað jafn­framt aðdá­endur afsök­unar sem höfðu keypt miða sér­stak­lega til að sjá Boy George á sviði.

Í lag­inu gagn­rýnir Boy George einnig tón­list­ar­menn á borð við Kneecap, Stormzy og Clairo fyrir stuðn­ing sinn við Palest­ínu og sakar þá um að fylgja straumnum.

Hann vísar einnig til árásar Hamas á Nova-tón­list­ar­há­tíð­ina 7. októ­ber 2023 og syngur meðal ann­ars að fólk hafi þagað um þá árás og for­dæmt gyð­inga með „sér­tæku minni“ og áróðri sem hafi breiðst út á inter­net­inu.

Laginu lýkur á orð­unum:

„Treystu mér, við munum dansa aftur … og þá verður ekk­ert stríð. En ef þú ert enn í vafa, þá stend ég með gyð­ingum. Ég tel mig ekki hug­rakkan, ég þarf bara að haga mér eins og mann­eskja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta