Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Líkir ESB-málinu við flutning úr einbýlishúsi í blokk

„Ekki skyn­sam­legt að sitja um kyrrt í ímynd­uðu frelsi“

Líkir ESB-málinu við flutning úr einbýlishúsi í blokk
Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor emeritus í íslenskri mál­fræði og virkur sam­fé­lags­rýnir líkir ESB-við­ræðum við fast­eigna­sölu Mynd: Árnastofnun

Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor emeritus í íslenskri mál­fræði og virkur sam­fé­lags­rýnir, vekur athygli á sam­fé­lags­miðlum með hisp­urs­lausri sam­lík­ingu þar sem hann setur umræð­una um Evr­ópu­sam­bandið í sam­hengi við fast­eigna­við­skipti. Hann segir að það sé glapræði að láta ekki reyna á samn­inga áður en end­an­leg ákvörðun er tekin.

Í færslu á Facebook-síðu sinni vísar Eiríkur til kom­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið. Til að útskýra afstöðu sína grípur hann til per­sónu­legrar sögu af því þegar hann og eig­in­kona hans seldu gam­alt og sögu­frægt ein­býl­is­hús á Gríms­staða­holt­inu eftir 35 ára búsetu og fluttu í nýja fjöl­býl­is­húsa­blokk í Holtunum.

Frelsinu fylgir líka ábyrgð og viðhald

Eiríkur lýsir því að í gamla ein­býl­is­hús­inu hafi þau hjónin haft full­komið frelsi og verið eigin herrar. Hins vegar hafi frels­inu einnig fylgt það óhag­ræði að geta látið hlut­ina dankast. Með hækk­andi aldri varð ljóst að brattir stigar og stór garður myndu ekki henta til fram­tíðar.

Þau ákváðu því að setja húsið á sölu til að kanna mark­að­inn, full­með­vituð um að ferl­inu fylgdi ákveð­inn kostn­aður, óþæg­indi og átroðn­ingur fólks í leit að skoðun.

„Í því að setja húsið á sölu fólst auð­vitað yfir­lýs­ing um að við hefðum áhuga á að selja það. En það þýddi ekki að við ætl­uðum að selja á hvaða verði sem væri,“ skrifar Eiríkur. Hann und­ir­strikar að ef við­un­andi til­boð hefði ekki borist, hefðu þau ein­fald­lega dregið húsið af sölu og búið þar áfram.

Samfélagið í blokkinni og neitunarvaldið

Eftir flutn­ing­ana í nýja fjöl­býl­is­húsið segir Eiríkur frelsið vissu­lega tak­mark­aðra þar sem þau þurfi að lúta hús­reglum og sam­þykktum hús­funda. Þrátt fyrir að vera aðeins með eitt atkvæði af 38 breyti það ekki öllu máli:

„Þar er það ekki atkvæða­fjöld­inn sem ræður úrslitum, heldur rök­semdir og mál­flutn­ingur og í sumum málum þarf sam­þykki allra íbúa þannig að við höfum þar neit­un­ar­vald.“

Á móti tak­mörk­uðu frelsi komi skipu­lag, hús­fé­lag sem léttir af þeim áhyggjum og ríkt sam­fé­lag þar sem hlut­irnir eru ekki látnir dankast.

Samningaviðræður skuldbinda engan

Eiríkur dregur af þessu þá ályktun að lík­ingin eigi sterka sam­leið með ESB-mál­inu. Hann bendir á að það að ljúka samn­inga­við­ræðum sé sam­bæri­legt við að setja eign í sölu­ferli eða skoða nýja íbúð það felur ekki í sér end­an­lega skuld­bind­ingu heldur upp­lýs­inga­öflun.

„Það er ekki endi­lega skyn­sam­legt að sitja bara um kyrrt á sínum stað í sínu ímynd­aða frelsi. Það er nauð­syn­legt að láta á það reyna hvort eitt­hvað annað betra bjóð­ist. Ef athugun leiðir í ljós að svo er ekki heldur maður bara áfram í óbreyttu ástandi,“ segir Eiríkur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi