Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rauði krossinn undirbýr viðbragð vegna sólmyrkvans

Fimm atriði til að hafa á hreinu áður en lagt er af stað að sjá sól­myrk­vann.

Rauði krossinn undirbýr viðbragð vegna sólmyrkvans
Sól­myrk­vinn sést 12. ágúst Ferðalög sem þessi kefj­ast und­ir­bún­ings Mynd: Daniel Gomez á Unsplash

Rauði kross­inn verður í við­bragðs­stöðu um allt vest­an­vert land þegar almyrkvi verður á sólu 12. ágúst. Neyð­ar­varnateymi félags­ins og hópur sjálf­boða­liða verða sér­stak­lega til taks á Snæ­fells­nesi og Vest­fjörðum, þar sem búist er við miklum fjölda ferða­manna.

Í til­kynn­ingu frá Rauða kross­inum segir að und­ir­bún­ingur hafi staðið yfir í marga mán­uði í sam­starfi við aðra við­bragðs­að­ila. Félagið verður meðal ann­ars með sér­út­búnar neyð­ar­varna­kerrur, rúm, teppi og stórt tjald á sunn­an­verðum Vest­fjörðum sem hægt verður að reisa hratt ef þörf krefur.

„Mottó Rauða kross­ins er að vera til­bú­inn að bregð­ast við ef hættu- eða neyð­ar­á­stand skap­ast og fólk þarf af ein­hverjum ástæðum á stuðn­ingi okkar að halda,“ segir Aðal­heiður Jóns­dóttir, teym­is­stjóri neyð­ar­varna hjá Rauða kross­inum.

Hún bendir á að búast megi við mik­illi umferð bæði smærri og stærri öku­tækja um svæði sem víða séu við­kvæm og utan alfara­leiða. Þá geti veður, aukin flug­um­ferð og fjöldi skemmti­ferða­skipa við vest­ur­strönd­ina einnig haft áhrif á aðstæður.

„Ef slys verða eða ann­ars konar áföll henda verður Rauði kross­inn til­bú­inn til aðstoðar og getur komið upp fjölda­hjálp­ar­stöð í tjald­inu eða hent­ugu hús­næði ger­ist þess þörf,“ segir Aðal­heiður.

Rauði kross­inn hvetur fólk til að nýta skipu­lagða áhorfs­staði í heima­byggð sinni þegar kostur er. Um 70 pró­sent lands­manna munu geta séð almyrk­vann frá heima­högum sínum og þurfi því ekki að ferð­ast langar leiðir.

Jafn­framt er fólk hvatt til að und­ir­búa ferða­lög vel, leggja tím­an­lega af stað og gera ráð fyrir umferð­artöfum.

„Við biðlum til þeirra sem ætla að vera á ferð­inni að leggja tím­an­lega af stað og fara að öllu með gát við þessar óvenju­legu aðstæður svo að sem flest geti notið þessa stór­kost­lega sjón­ar­spils sem almyrk­vinn verður,“ segir Aðal­heiður.

Rauði kross­inn minnir einnig öku­menn á að hafa við­laga­kassa í bílnum með meðal ann­ars vatni, nesti, hlýjum fötum, teppi, hleðslu­banka fyrir síma og skyndi­hjálp­ar­tösku, auk þess að fylla á bíl­inn áður en lagt er af stað og gleyma ekki sól­myrkvagler­aug­unum.

Hér má lesa fimm atriði sem Rauði kross­inn bendir fólki á að gera áður en lagt er af stað í ferða­lagið.

  1. Útbúðu við­laga­kassa í bíl­inn. Í hann skaltu t.d. setja vatn, nesti, hrein­læt­is­vörur, teppi, hlý föt, auka­skó, hleðslu­banka fyrir sím­ann og skyndi­hjálp­ar­tösku.
  2. Fylgstu vel með veð­ur­spá og leið­bein­ingum frá yfir­völdum, s.s. um umferð­ar­tak­mark­anir.
  3. Fylltu á bíl­inn (elds­neytistank­inn eða raf­hlöð­una).
  4. Leggðu tím­an­lega af stað og ekki flýta þér heim.
  5. Mundu eftir sól­myrkvagler­aug­unum!
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi