Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rússar stækka „skuggaflota“ sinn

Flest skip­anna eru skráð á skúffu­fyr­ir­tæki sem tengj­ast Rúss­landi.

Rússar stækka „skuggaflota“ sinn
Olíu­flutn­inga­skip úr skugga­flot­anum Rússar eiga mun fleiri olíu­skip í skugga­flota sínum en LNG skip. Mynd: THIBAUD MORITZ / AFP

Rússland hefur stækkað svo­kall­aðan „skugga­flota“ sinn til flutn­inga á fljót­andi jarð­gasi (LNG) með því að bæta við bæði not­uðum gas­flutn­inga­skipum og fyrstu tank­skip­unum sem smíðuð hafa verið inn­an­lands. Þetta kemur fram í umfjöllun Financial Times sem byggir á gögnum frá grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Windward.

Samkvæmt grein­ing­unni hefur skugga­floti Rússa fyrir LNG-flutn­inga stækkað í 25 skip á síð­ustu sex mán­uðum. Þar af eru að minnsta kosti átta notuð tank­skip og tvö ný skip sem smíðuð voru í Zvezda-skipa­smíða­stöð­inni í Rúss­landi.

Flest skip­anna eru skráð á skúffu­fyr­ir­tæki sem tengj­ast Rúss­landi og eru með skrán­ingu í lög­sögum á borð við Dúbaí, Hong Kong og Singapúr.

Stærsti aðil­inn á rúss­neskum LNG-mark­aði er Novatek. Yamal LNG-verk­smiðja fyr­ir­tæk­is­ins í Síberíu og Arctic LNG 2-verk­efnið, sem sætt hefur refsi­að­gerðum Vest­ur­landa, standa saman undir meira en 65 pró­sentum af fram­leiðslu Rúss­lands á fljót­andi jarð­gasi. Um 30 pró­sent fram­leiðsl­unnar koma frá Sakhalin-2-verk­efni Gazprom í Aust­ur­löndum fjær.

Financial Times segir Kína vera stærsta kaup­anda gass frá Arctic LNG 2. Samkvæmt mati blaðs­ins og grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Kpler ann­ast ell­efu skip, sem eru að með­al­tali tíu ára gömul, flutn­inga frá verk­efn­inu. Farm­ur­inn er síðan fluttur yfir á hefð­bundin tank­skip við fljót­andi umskip­un­ar­stöðvar áður en hann heldur áfram til Kína.

Stækkun gas­flutn­inga­flot­ans á að gera Moskvu kleift að halda áfram útflutn­ingi á LNG þegar bann Evr­ópu­sam­bands­ins við inn­flutn­ingi á rúss­nesku fljót­andi jarð­gasi tekur gildi 1. jan­úar 2027. Fyr­ir­myndin er svo­kall­aður skugga­floti olíu­flutn­inga­skipa, sem telur nú yfir eitt þús­und skip.

Financial Times bendir þó á að upp­bygg­ing skugga­flota fyrir gas­flutn­inga hafi gengið hægar en fyrir olíu­flutn­inga þar sem LNG-skip eru mun tækni­lega flókn­ari.

Frétta­stofan Reuters greindi frá því að Novatek hefði stöðvað fram­leiðslu á fljót­andi jarð­gasi í Arctic LNG 2-verk­efn­inu í apríl 2024 vegna refsi­að­gerða og skorts á sér­hæfðum flutn­inga­skipum. Þá hafði fyr­ir­tækið aðeins þrjú sér­smíðuð skip til umráða af þeim fimmtán sem fyr­ir­huguð voru árið 2020.

Til stóð að bann við flutn­ingum á rúss­nesku LNG til þriðju ríkja yrði hluti af 21. refsi­að­gerða­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins gegn Rúss­landi. Grikk­land lagð­ist hins vegar gegn þeirri til­lögu, meðal ann­ars með hags­muni skipa­fé­lags­ins Dynagas að leið­ar­ljósi, og var ákvæðið að lokum fellt út úr nýjasta refsi­að­gerða­pakk­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta