Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir háværan minnihluta skapa falska mynd af klofnu samfélagi

„Bylur hæst í tómri tunnu.“

Segir háværan minnihluta skapa falska mynd af klofnu samfélagi
Unnar Geir Unn­ars­son Unnar Geir tekur fram að fór­dómar séu ekki horfnir. Mynd: Facebook

Unnar Geir Unn­ars­son, menn­ing­ar­stjórn­andi, segir að umræða á sam­fé­lags­miðlum gefi ranga mynd af því að sam­fé­lagið sé klofið í afstöðu sinni til rétt­inda hinsegin fólks. Þetta kemur fram í pistli sem hann birtir á Vísi í dag.

Að mati Unnars er auð­velt að fá á til­finn­ing­una að Ísland og önnur vest­ræn sam­fé­lög standi frammi fyrir harð­vít­ugu menn­ing­ar­stríði. Hann segir hins vegar að skoð­ana­kann­anir sýni allt aðra mynd.

„Þær sýna að flest fólk hefur löngu tekið afstöðu með þeirri ein­földu hug­mynd að öll eigum við að njóta sömu mann­rétt­inda og frelsis til að vera við sjálf,“ skrifar hann.

Hann telur að sam­fé­lags­miðlar ýki átök þar sem reikni­rit umbuni umdeildri umræðu frekar en sam­hljómi.

„Hinn hávær minni­hluti getur auð­veld­lega virst stærri en hann er þegar algóritmi sam­fé­lags­miðla umb­unar átökum fremur en sam­hljómi,“ segir hann og bætir við að fáir en háværir ein­stak­lingar geti skapað þá til­finn­ingu að sam­fé­lagið sé klofið þegar raunin sé önnur.

Unnar vísar meðal ann­ars til Eurobarometer-könn­unar Evr­ópu­sam­bands­ins frá 2023 þar sem 72 pró­sent sögð­ust styðja hjóna­bönd sam­kynja para um alla Evrópu. Þá bendir hann á Gallup-könnun frá 2025 sem sýndi að 89 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu töldu Ísland vera góðan stað fyrir sam­kyn­hneigt fólk til að búa á. Í ald­urs­hópnum 18 til 29 ára var hlut­fallið 99 pró­sent.

Hann tekur þó fram að for­dómar og mis­munun séu enn til staðar.

„Auðvitað þýðir þetta ekki að for­dómar séu horfnir eða að ekk­ert sé lengur að berj­ast fyrir, alls ekki. Fólk verður enn fyrir mis­munun og hat­urs­orð­ræða er enn til staðar. En það er mik­il­vægt að rugla ekki saman hávaða og meiri­hluta­á­liti.“

Að lokum segir Unnar að ef til vill sé kom­inn tími til að hætta að líta á hinsegin fólk sem lít­inn minni­hluta sem þurfi stöðugt að rétt­læta til­vist sína.

„Raunin er sú að meiri­hluti sam­fé­lags­ins hefur þegar tekið afstöðu með mann­rétt­indum. Þrátt fyrir það fær fámennur hópur oft meira vægi í umræð­unni en stærð hans gefur til­efni til. Ekki vegna þess að hann sé stór, heldur vegna þess að hann hefur hátt.“

Pistl­inum lýkur á orð­unum: „Bylur hæst í tómri tunnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi