Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Burrito orðið að óvæntu deilumáli innan Repúblikanaflokksins

Ummælin hafa hrundið af stað hörðum skoð­ana­skiptum meðal íhalds­manna

Burrito orðið að óvæntu deilumáli innan Repúblikanaflokksins
Donald Trump er for­seti Banda­ríkj­anna Mynd: ANDREW CABALLERO-REYNOLDS / AFP

Verð á burrito hefur orðið að óvæntu hita­máli innan Repúblikana­flokks­ins í Banda­ríkj­unum, þar sem vax­andi áhyggjur eru af því að hátt verð­lag og fram­færslu­kostn­aður geti reynst flokknum dýr­keyptur í þing­kosn­ing­unum í nóv­em­ber.

Umræðan hófst eftir að Andrew Kolvet, tals­maður íhalds­sömu ung­menna­sam­tak­anna Turning Point USA, birti færslu á X þar sem hann vitn­aði í háskóla­nema innan sam­tak­anna sem sagði að burrito ætti ekki að kosta 20 Banda­ríkja­dali. Kolvet sagði að þótt hluta verð­hækk­ana mætti rekja til verð­bólgu í kjöl­far Covid-far­ald­urs­ins og for­seta­tíðar Joe Biden væri upp­lifun almenn­ings sú sama: nauð­synja­vörur væru ein­fald­lega orðnar of dýrar.

Ummælin hafa hrundið af stað hörðum skoð­ana­skiptum meðal íhalds­manna. Fox News hefur jafn­vel lýst deil­unum sem „borg­ara­styrj­öld“ innan flokks­ins.

Dan Crenshaw, þing­maður Repúblikana­flokks­ins frá Texas, gagn­rýndi kvart­anir ungs fólks og sagði náms­menn frekar eiga að fá sér vinnu, borða ódýran mat og búa með fleirum líkt og fyrri kyn­slóðir hefðu þurft að gera.

Marc Thiessen, fyrr­ver­andi ráð­gjafi George W. Bush Banda­ríkja­for­seta og nú dálka­höf­undur, tók í svip­aðan streng. Hann sagð­ist sjálfur hafa lifað á núðlum eftir útskrift og unnið hörðum höndum í stað þess að kvarta undan verð­lagi.

JD Vance vara­for­seti svar­aði Thiessen hins vegar með per­sónu­legu skoti og sagði aug­ljóst af lík­ams­vexti hans að hann hefði „aldrei sleppt burrito“.

Fleiri á hægri vængnum hafa varað við því að gera lítið úr áhyggjum kjós­enda. Angela Morabito, tals­maður Defense of Freedom Institute, sagði að ef svar hægri­manna við fram­færslu­vand­anum væri að segja fólki að borða verr myndu Repúblikanar tapa kosn­ing­unum í nóv­em­ber og eiga það skilið.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur á sama tíma haldið því fram að verð­bólga sé á nið­ur­leið og hafnað því að tolla­stefna hans hafi ýtt undir verð­hækk­anir. Samkvæmt opin­berum tölum fór verð­bólga í 4,2 pró­sent í maí en lækk­aði í 3,5 pró­sent í júní.

Fram­færslu­kostn­aður er áfram ofar­lega í huga banda­rískra kjós­enda. Í nýlegri könnun Marquette-háskóla nefndu 35 pró­sent svar­enda hann sem helsta áhyggju­efni sitt, tölu­vert fleiri en nefndu stríðið í Íran.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta