Landskjörstjórn hafnar fullyrðingum Morgunblaðsins um að orðalagi á upplýsingavef stjórnarinnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafi verið breytt án þess að breytingarinnar væri getið.
Morgunblaðið birti í gær, 10. ágúst, frétt á forsíðu blaðsins og á mbl.is undir fyrirsögninni „Orðalag um óvissa kjósendur horfið af upplýsingavef landskjörstjórnar“. Þar var því haldið fram að breyting hefði verið gerð á texta sem birtur er á upplýsingavef landskjörstjórnar.
Landskjörstjórn hefur nú brugðist við fréttinni með fréttatilkynningu og segir fullyrðinguna ekki eiga við rök að styðjast.































Athugasemdir