Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erlendir fangar fá „afslátt“ umfram íslenska

Hvers vegna var dæmdum morð­ingja sleppt úr fang­elsi á Íslandi? Sigríður Á. Andersen krefst svara

Erlendir fangar fá „afslátt“ umfram íslenska
Sigríður Á. And­ers­sen, þing­maður Mið­flokks­ins „Óásætt­an­leg stefna“ Mynd: Víkingur

„Það orkar mjög tví­mælis, svo ekki sé meira sagt, að fram­kvæmd­ar­valdið hafi svo víð­tæka heim­ild til þess að víkja til hliðar skýrum ákvörð­un­ar­orðum Hæsta­réttar,“ segir Sigríður Á. Andersen, þing­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra í opin­berri færslu. Hún kallar eftir því að Alþingi setji skýrar skorður við bráða­birgða­á­kvæði sem notað hefur verið til að veita erlendum föngum, sem dæmdir hafa verið fyrir mann­dráp, snemm­búna reynslu­lausn.

Tilefnið er við­tal við Sigríði í hádeg­is­fréttum Sýnar í kjöl­far frétta af albönskum fanga, sem dæmdur var í 16 ára fang­elsi árið 2023 fyrir yfir­lagt mann­dráp, en var sleppt úr haldi á dög­unum og sendur úr landi. Lausnin byggir á bráða­birgð­ar­á­kvæði sem Alþingi sam­þykkti í sumar til að bregð­ast við pláss­leysi í fang­elsum, en Mið­flokk­ur­inn studdi ekki breyt­ing­una.

Lausnin á plássleysi á ekki að vera afsláttur á refsingum

Sigríður bendir á að þótt skiln­ingur hafi verið á erf­iðri stöðu fang­elsanna, þá sé lausnin á þeim vanda ekki sú að hlífa glæpa­mönnum við dæmdri refs­ingu. Hún telur það stand­ast illa jafn­ræð­is­sjón­ar­mið að gerður sé grein­ar­munur á föngum þar sem erlendir rík­is­borg­arar fái afslátt umfram íslenska fanga.

„Ég held að fáa á Alþingi hafi grunað að þetta bráða­birgð­ar­á­kvæði yrði notað um erlenda fanga sem afplána þyngstu dóma hér á landi, fyrir morð,“ segir Sigríður og und­ir­strikar að um sé að ræða ein­stak­linga sem hafi engin tengsl við landið en virð­ast hafa komið hingað í þeim eina til­gangi að fram­kvæma aftöku.

Kallar eftir því að dregið verði úr heimildum Fangelsismálastofnunar

Sigríður rifjar upp að ákvæði um reynslu­lausn í íslenskum lögum séu heim­ild­ar­á­kvæði og það sé í höndum Fang­els­is­mála­stofn­unar að meta hvort fangi skuli lát­inn laus.

„Ef stofn­un­inni er ekki treystandi til þess að meta skyn­sam­lega með mál­efna­legum hætti hvort eðli­legt sé að veita fanga reynslu­lausn með til­lit til ekki bara hegð­unar heldur sér­stak­lega með til­liti til varn­að­ar­á­hrifa og gild­andi refsi­stefnu þá er ein­boðið að Alþingi láti málið til sín taka með skýrum tak­mörk­unum á þess­ari heim­ild,“ segir hún.

Dómsmálaráðherra beri ábyrgð á upplýsingagjöf um Schengen-bann

Að mati Sigríðar hefur verið látið of lítið með það í umræð­unni hvaða afleið­ingar brott­vís­unin og henni fylgj­andi end­ur­komu­bann hafa í för með sér. Hún bendir á að slíkt bann eigi að hafa í för með sér sjálf­krafa skrán­ingu í upp­lýs­inga­kerfi Schengen (SIS), sem loki dyr­unum á við­kom­andi inn á allt Schengen-svæðið.

Hún kallar eftir því að upp­lýst verði um hversu langt end­ur­komu­bann var ákvarðað í þessu til­tekna máli og segir að dóms­mála­ráð­herra beri ábyrgð á því að þessar upp­lýs­ingar liggi skýrt fyrir í sam­fé­lags­um­ræð­unni svo hægt sé að meta raun­veru­legan fæl­ing­ar­mátt úrræð­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi