Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Varaði við unglingum í Vesturbænum

Mynd­birt­ing af ung­lingum vakti hörð við­brögð

Varaði við unglingum í Vesturbænum
Pablo Santos hvetur til yfir­veg­unar: „Ást og kær­leikur til allra“ Mynd: Unsplash/Dominic Kurniawan

Nýleg mynd­birt­ing í íbúa­hópnum Vest­ur­bær­inn á Facebook hefur vakið athygli og umræðu um mörk nágranna­vaktar og for­dóma. Í færsl­unni, sem nú hefur verið eytt, voru tveir ung­lingar sagðir vera að „þvæl­ast um garða“ í Hjarð­ar­haga og Fornhaga og íbúar varaðir við þeim. Í ljós kom að drengirnir voru vinnu­fé­lagar á leið heim til sín.

Pablo Santos, faðir ann­ars drengs­ins, tjáði sig um málið í hópnum til að vekja fólk til umhugs­unar. Hann útskýrir að strák­arnir hafi ein­fald­lega verið að flýta sér og stytta sér leið heim.

„Okkar litla sam­fé­lag þarf að passa sig“

Pablo segir færsl­una hafa verið óvið­eig­andi, sér­stak­lega í ljósi þess að annar drengj­anna er með annað útlit en dæmi­gerður hvítur Íslend­ingur. Hann tekur fram að hann skilji og styðji nágranna­vakt­ina fylli­lega, en varar við því að fólk sé of fljótt að dæma.

„Okkar litla sam­fé­lag þarf að passa sig á að dæma ekki strax og hugsa betur um hegðun okkar varð­andi öryggi og óvissu,“ skrifar Pablo.

Hann fagnar því að færslan hafi verið tekin niður og að umræðan sem skap­að­ist í kjöl­farið hafi sýnt að svona atferli sé ekki í lagi.

Leitar eftir skiln­ingi frekar en átökum

Sá sem birti mynd­ina upp­haf­lega hefur ekki svarað skila­boðum frá Pablo, en Pablo áréttar að til­gangur hans sé ekki að efna til deilna.

„Ég er ekki að leita eftir átökum heldur frekar skiln­ingi á því hvað hefði vakað fyrir honum. Þetta eru við­kvæmir tímar í sam­skiptum manna á milli og sem betur fer búum við í landi þar sem friður og mann­rétt­indi eru til staðar og mjög mik­il­væg,“ segir Pablo að lokum og sendir ást og kær­leika til íbúa.

Málið sýnir hversu hratt mis­skiln­ingur getur magn­ast upp á sam­fé­lags­miðlum og hversu mik­il­vægt er að sýna yfir­vegun áður en full­yrð­ingar og myndir af fólki eru birtar opin­ber­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi