Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innbrotsþjófur gómaður í Árbænum

Rúðan hefur tíma­bundið verið byrgð með við­arplötu

Innbrotsþjófur gómaður í Árbænum
Mynd af vett­vangi Mynd: Handverkskúnst

Brotist var inn í versl­un­ina Hand­verkskúnst í Árbæ snemma í gær­morgun. Rúða í versl­un­inni var brotin með stóru grjóti og komst maður inn um gatið. Lögregla hand­tók mann­inn skömmu síðar en hann var enn á vett­vangi þegar lög­reglu­menn komu að.

Greint er frá inn­brot­inu í færslu Hand­verkskúnstar á Facebook. Þar segir að mað­ur­inn hafi kastað stóru grjóti í rúðu versl­un­ar­innar og síðan skriðið inn um gatið.

Að sögn for­svars­manna versl­un­ar­innar virt­ist mað­ur­inn ekki hafa áhuga á garn­inu sem þar er selt heldur sótt­ist hann eftir skipti­mynt í sjóðs­vél­inni. Afrakstur inn­brots­ins var þó lít­ill þar sem kass­inn er tæmdur dag­lega.

Örygg­is­mið­stöðin brást fljótt við og hafði sam­band við lög­reglu. Lög­reglu­menn voru sömu­leiðis fljótir á stað­inn og hand­tóku mann­inn, sem hafði ekki yfir­gefið versl­un­ina.

Fjöl­skylda eig­anda Hand­verkskúnstar brást einnig við inn­brot­inu. Guðrún, móðir hennar, var vöknuð snemma og svar­aði sím­tali frá Örygg­is­mið­stöð­inni.

Atvikið vakti jafn­framt for­vitni yngstu fjöl­skyldu­með­li­manna, sem höfðu miklar áhyggjur af því hvað hefði orðið um stein­inn sem not­aður var við inn­brotið. Síðar um dag­inn var farið með þá í vett­vangs­ferð til að skoða grjótið.

Rúðan hefur tíma­bundið verið byrgð með við­arplötu og von­ast eig­endur til að henni verði skipt út sem fyrst. Engar aðrar skemmdir urðu á versl­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi