61 árs karlmaður í Oklahoma í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn eftir að hafa ráðist að lögreglumönnum með heimatilbúni eldvörpu þegar þeir hugðust afhenda honum tilkynningu um útburð úr íbúð hans.
Atvikið náðist á búkmyndavélar lögreglumanna og sýnir myndskeið frá vettvangi þegar þeir fara inn í íbúð mannsins, Darron Dunn.
Samkvæmt atvikaskýrslu lögreglustjóraembættisins í Oklahoma-sýslu beindi Dunn úðabrúsa að lögreglumönnunum og úðaði úr honum á sama tíma og hann kveikti í efninu með kveikjara. Við það myndaðist eldtunga sem beindist að lögreglumönnunum.
Þegar eldurinn hafði slokknað vaknaði grunur um að sprengibúnaður væri einnig í íbúðinni. Lögreglumenn komu auga á rafgeymi úr bifreið sem tengdur var við víra. Vírarnir lágu í gegnum stofu íbúðarinnar að búnaði sem komið hafði verið fyrir nærri útidyrunum.
Lögreglumennirnir yfirgáfu í kjölfarið íbúðina og kölluðu til sprengjusveit og sérsveit. Sérfræðingum tókst síðar að gera búnaðinn óvirkan án frekari atvika.
Dunn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir læknisskoðun áður en hann var handtekinn.
Samkvæmt atvikaskýrslunni hefur Dunn verið ákærður fyrir alvarlega líkamsárás, brot tengt sprengiefnum og fyrir að hindra störf lögreglu.





















Athugasemdir