Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Risastór verðmunur á dagvöru

Prís með lægsta verðið á ríf­lega 300 vörum í nýrri könnun ASÍ

Risastór verðmunur á dagvöru
Prís og Bónus oft­ast með lægsta verðið – Kram­búðin og 10-11 dýrastar Mynd: Facebook

Verð á dag­vöru hækk­aði að með­al­tali um 0,14% milli júlí og ágúst, sam­kvæmt nýj­ustu mæl­ingu verð­lags­eft­ir­lits ASÍ. Nokkuð hefur hægt á verð­hækk­unum á mat­vöru sem mæld­ust miklar í upp­hafi árs. Á sama tíma sýnir nýr verð­sam­an­burður ASÍ að mik­ill og við­var­andi verð­munur er á sömu vörum eftir því hvar verslað er. 

Í nýjum verð­sam­an­burði ASÍ á 561 vöru var mið­gildi verð­munar milli lægsta og hæsta verðs um 42%, Prís var oft­ast með lægsta verð en Kram­búðin oft­ast með hæsta verð. 

Prís ódýrast – 10-11 dýrust

Séu borin saman verð á 561 vöru sem fékkst í tíu versl­unum í ágúst var lægsta verðið oft­ast að finna í Prís, eða á 317 vörum, og Bónus næstoft­ast, á 123 vörum. Þegar hæsta verðið er skoðað snýst myndin við. Kram­búðin var oft­ast dýr­ust, á 186 vörum, Kjör­búðin á 138 vörum og 10-11 á 124 vörum. 

Sé verð­munur milli versl­ana mældur má sjá að neyt­endur geta gert ódýr­ustu inn­kaupin í Prís. Verðlag í Bónus er að jafn­aði 4% hærra en þar sem varan er ódýr­ust, sem oft­ast er í Prís. Krónan er að jafn­aði 5% dýr­ari en ódýrasta verslun og þar á eftir fylgir Nettó um 10% dýr­ari en ódýrasta verslun. Verðlag í Kjör­búð­inni og Hag­kaupum er um 30% hærra en þar sem ódýr­ast er að versla en hæsta verð­lag á vörum er að finna í 10-11. 

Verð­munur milli vara getur þó verið mjög breyti­legur. Af þeim vörum sem feng­ust í tíu versl­unum í ágúst var mun­ur­inn á hæsta og lægsta verði 30% eða meiri á nærri átta af hverjum tíu vörum. 

Þetta er í sam­ræmi við þró­un­ina sem verð­lags­eft­ir­lit ASÍ hefur mælt yfir lengri tíma. Verð í dýr­ari versl­unum hefur að jafn­aði verið tugum pró­senta hærra en þar sem sama vara fæst ódýr­ust. Þannig getur með­al­verð dag­vöru hækkað um brot úr pró­senti milli mán­aða á sama tíma og tugir pró­senta skilja að verð á nákvæm­lega sömu vöru milli versl­ana. 

Mikill munur á algengum vörum

Munurinn verður sér­stak­lega áþreif­an­legur þegar skoðuð er vöru­karfa með 25 algengum mat- og dag­vörum, þar á meðal brauði, mjólk­ur­vörum, pylsum, kaffi, morg­un­korni og drykkj­ar­vörum. 

Myllu­heim­il­is­brauð kost­aði til dæmis 349 krónur þar sem það var ódýr­ast í Prís en 729 krónur í Kram­búð­inni þar sem það var dýr­ast. Einn lítri af létt­mjólk kost­aði frá 266 krónum í Prís upp í 419 krónur í 10-11 og Felix-tómatsósa frá 309 krónum í Prís upp í 499 krónur í Kjör­búð­inni. 

Á ein­stökum vörum er mun­ur­inn enn meiri. Tunnock's Caramel Bar kost­aði 98 krónur í Bónus þar sem hann var ódýrastur en 469 krónur í 10-11 þar sem hann var dýrastur og er því um fjór­falt dýr­ari í 10-11. Bonaqua með skóg­ar­berja­bragði kost­aði frá 124 krónum í Prís upp í 329 krónur í 10-11. 

Nið­ur­stöð­urnar sýna að fyrir heim­ilin skiptir ekki aðeins máli hvernig verð­lag þró­ast frá einum mán­uði til ann­ars heldur einnig að það getur verið nokk­urra tuga pró­senta verð­munur á ein­stökum vörum sem safn­ast fljótt upp þegar vör­unum fjölgar. 

Um verðtökuna 

Verð­lags­eft­ir­litið kann­aði verð í versl­unum dag­ana 10.-25. ágúst. Verð voru könnuð í 10-11, Bónus, Krónunni, Nettó, Hag­kaupum, Kjör­búð­inni, Kram­búð­inni, Fjarð­ar­kaupum, Prís og SPAR.  Í sam­an­tekt­inni að ofan eru verð borin saman í öllum versl­un­unum. Öll verð ásamt nýj­ustu verðum geta neyt­endur nálg­ast í Nappinu eða á ver­dlags­eft­ir­lit.is. 

Í verð­sam­an­burði er miðað við hillu­verð sem neyt­andi hefur upp­lýs­ingar um í versl­un­inni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/til­boðs­verð af merktu verði við kassa var skráð afslátt­ar­verð. 

Hér er aðeins um beinan verð­sam­an­burð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjón­ustu sölu­að­ila. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara