Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Gríðarlegur verðmunur á æfingagjöldum

Getur munað tugum þús­unda á sömu íþrótt

Gríðarlegur verðmunur á æfingagjöldum
Fram reynd­ist vera með dýr­ustu lið­unum Mynd: Fram

Það getur munað tugum þús­unda króna á ári hvað for­eldrar greiða fyrir hand­bolta og körfu­bolta barna sinna eftir því hjá hvaða félagi þau æfa. Sam­an­burður ASÍ sýnir að æfinga­gjöld geta farið yfir 175 þús­und krónur í hand­bolta og 180 þús­und krónur í körfu­bolta. Frí­stunda­styrkir sveit­ar­fé­laga lækka reikn­ing­inn en duga mis­langt eftir félagi og búsetu.

ASÍ hefur tekið saman æfinga­gjöld barna í hand­bolta og körfu­bolta hjá félögum víða um land. Til að gera sam­an­burð­inn skýr­ari er sér­stak­lega horft til þriggja ald­urs­hópa: 6–7 ára, 10–11 ára og 14–15 ára. 

Nið­ur­stöð­urnar sýna mik­inn verð­mun, bæði milli félaga og sveit­ar­fé­laga. Kostn­að­ur­inn er almennt meiri hjá eldri börnum en tölu­verður munur er á gjöldum jafn­vel þegar börn á nákvæm­lega sama aldri eru borin saman.

Mikill munur milli félaga eftir landshlutum

Í hand­bolta er Þór á Akureyri með lægsta gjaldið í öllum þremur ald­urs­hóp­unum sem skoð­aðir voru og KA er næst­lægst.

Fyrir 6–7 ára börn kostar 69.000 krónur hjá Þór en hæsta gjaldið er 112.500 krónur hjá Fram. Munurinn er 43.500 krónur á ári.

Verð­bilið breikkar hjá 10–11 ára börnum. Þór er með 85.000 króna gjald en Fram er hæst með 161.650 krónur. Þar munar 76.650 krónum.

Hjá 14–15 ára er gjaldið lægst 105.000 krónur hjá Þór en hæst 176.060 krónur hjá Fjölni. HK fylgir fast á eftir með 175.000 krónur.

Félögin KA og Þór á Akureyri skera sig því nokkuð úr í lægri enda sam­an­burð­ar­ins. Hjá 14–15 ára er gjaldið 105.000 krónur hjá Þór og 112.000 krónur hjá KA en meiri­hluti ann­arra félaga í sam­an­burð­inum er með gjöld yfir 145 þús­und krónum.

Mikill verðmunur innan Reykjavíkur

Tölu­verður munur getur verið milli félaga innan sama sveit­ar­fé­lags. Það sést vel í Reykja­vík. Fyrir 10–11 ára kostar hand­bolt­inn 105.000 krónur hjá Fylki en 161.650 krónur hjá Fram. Munurinn er 56.650 krónur á ári. Hjá 14–15 ára er Víkingur lægstur af Reykja­vík­ur­fé­lög­unum með 149.000 krónur en Fjölnir hæstur með 176.060 krónur. Þar munar rúm­lega 27 þús­und krónum. Fyrir 6–7 ára er bilið frá 83.000 krónum hjá Fylki upp í 112.500 krónur hjá Fram.

Yfir 180 þúsund krónur fyrir 14–15 ára í körfubolta

Mikill verð­munur kemur einnig fram í körfu­bolt­anum.

Líkt og í hand­bolt­anum birta sum félög aðeins haust­gjöld en til að auð­velda sam­an­burð hefur ASÍ tvö­faldað haust­gjöldin og sýnt þau sem áætl­aðan heils­árs­kostnað. Slíkar tölur eru áætl­anir en ekki birt árgjöld félag­anna.

Hjá 6–7 ára er lægsta áætl­aða gjaldið um 53.000 krónur hjá UMF Heklu, miðað við tvö­falt haust­gjald. Hæsta birta árgjaldið er 110.969 krónur hjá Stjörn­unni. Hjá 10–11 ára er áætl­aður heils­árs­kostn­aður hjá Heklu 51.000 krónur. Meðal félaga sem birta árgjald er Selfoss með 106.000 krónur en Haukar með 130.000 krónur. Hjá 14–15 ára er Hamar með lægsta birta árgjaldið, 97.000 krónur, en Stjarnan það hæsta, 182.187 krónur. Munurinn er 85.187 krónur á ári.

og ekki liggur fyrir í þessum sam­an­burði að vor­önnin kosti það sama og haustönnin.

Um könnunina

ASÍ tók saman birt æfinga­gjöld í hand­bolta og körfu­bolta hjá félögum víða um land. Flestar verð­skrár eru sóttar af mark­aðs­torgi Abler en einnig af heima­síðum félag­anna. Í þess­ari sam­an­tekt er sér­stak­lega horft til 6–7 ára, 10–11 ára og 14–15 ára barna. Ald­urs­flokkun félaga er ekki í öllum til­vikum eins. Þar sem aðeins haust­gjald liggur fyrir hefur það verið tvö­faldað til að áætla heils­árs­kostnað. Sú tala er ein­göngu notuð til sam­an­burðar og er ekki stað­fest árgjald við­kom­andi félags. Fjöldi æfinga og hvað er inni­falið í gjöld­unum geta einnig verið mis­mun­andi milli félaga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara