Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sökuð um grófa vanrækslu eftir að fimm ára dóttir þeirra drukknaði

For­eldr­arnir flúðu og liggja undir grun

Sökuð um grófa vanrækslu eftir að fimm ára dóttir þeirra drukknaði

Banda­rísku hjónin John Herb Hayes III, sjö­tugur, og Geordyn Nichole Hayes, 31 árs, hafa verið hand­tekin og ákærð fyrir grófa van­rækslu og að stofna lífi barns í hættu. Hand­takan á sér stað í kjöl­far þess að fimm ára ein­hverf og mál­laus dóttir þeirra, Saylor Hayes, fannst látin eftir að hafa drukknað á Pawleys Island í Suður-Karólínu þann 31. ágúst síð­ast­lið­inn.

Lög­reglu­yf­ir­völd í Suður-Karólínu og Tennessee lýsa yfir þungum áhyggjum af mála­vöxtum en rann­sókn bendir til þess að and­lát stúlkunnar hafi mátt rekja til ásetn­ings eða alvar­legs hirðu­leysis for­eldr­anna.

Fjarlægðu öryggisbúnað stúlkunnar og leyndu honum

Samkvæmt gögnum lög­reglu glímdi stúlkan við alvar­lega ein­hverfu og átti það til að strjúka að heiman og drag­ast að því að fara að vatn­inu. Af þeim sökum bar hún sér­stakt úln­liðs­band á vegum Project Lifes­a­ver, sem sendir út stað­setn­ing­ar­merki svo lög­regla geti fljótt fundið ein­stak­linga með vit­ræna skerð­ingu ef þeir týn­ast.

Rannsókn leiddi í ljós að for­eldr­arnir höfðu klippt örygg­is­bandið af stúlkunni áður en fjöl­skyldan lagði af stað í ferða­lag frá heim­ili sínu í Virginíu. Lög­reglan fann tækið síðar falið inni í bif­reið á heim­ili þeirra.

Afvegaleiddu björgunarsveitir og flúðu af vettvangi

Stúlkan var til­kynnt týnd frá sum­ar­húsi fjöl­skyld­unnar þann 30. ágúst. Í ljós kom að hún hafði verið skilin eftir án eft­ir­lits í tæp­lega 15 metra fjar­lægð frá vatni.

Á meðan á umfangs­mik­illi leit stóð sök­uðu yfir­völd hjónin um að hafa beint leit­ar­fólki og björg­un­ar­sveitum mark­visst í ranga átt og fjarri vatn­inu þar sem stúlkan fannst á end­anum látin morg­un­inn eftir. Þá hvöttu for­eldr­arnir björg­un­ar­fólk til að nota mót­töku­búnað til að leita að merki tæk­is­ins, þrátt fyrir að vita að þau hefðu sjálf klippt það af henni.

Skömmu eftir að lík stúlkunnar fannst flúðu hjónin af vett­vangi í Suður-Karólínu. Þau voru hand­tekin degi síðar af lög­regl­unni í Carter-sýslu í Tennessee.

Bíða framsals

Hjónin, sem giftu sig árið 2021 og eiga þrjú börn saman, sitja nú í gæslu­varð­haldi í Tennessee þar sem þau bíða þess að verða fram­seld til Suður-Karólínu til að mæta ásök­unum fyrir dómi. Málið hefur vakið gríð­ar­lega athygli vest­an­hafs, bæði vegna alvar­leika ásakan­anna og mik­ils ald­urs­munar hjón­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife