Nýtt félag, Fory ehf., hefur verið skráð hjá hlutafélagaskrá en tilgangur þess er innflutningur og sala á fatnaði, rekstur fataverslunar og tengd starfsemi.
Stofnendur félagsins eru Sara Lind Pálsdóttir og Guðríður Jónsdóttir. Sara Lind, sem er betur þekkt sem Sara í Júník, hefur starfað í fatabransanum um árabil og á einmitt fatabúðina Júník og gegnir stöðu framkvæmdastjóra Fory.
Greint er frá þessu í Lögbirtingablaðinu.
Guðríður situr í stjórn félagsins og hefur jafnframt prókúruumboð, en Sara er varamaður í stjórn.
















Athugasemdir