Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögmaður Lindsay Clancy vill að Trump náði hana

Clancy hefur verið ákærð fyrir þrjú morð vegna dauða barna sinna

Lögmaður Lindsay Clancy vill að Trump náði hana
Lindsay Clancy með börnum og eig­in­manni Mynd: Facebook

Lögmaður banda­rísku kon­unnar Lindsay Clancy hefur opin­ber­lega hvatt Donald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, til að íhuga að náða skjól­stæð­ing sinn. Clancy er ákærð fyrir að hafa orðið þremur ungum börnum sínum að bana á heim­ili fjöl­skyld­unnar í Massachusetts.

Kevin Redd­ington, lög­maður Clancy, lét þessi orð falla í við­tali við George Stephanopoulos í þætt­inum Good Morning America á þriðju­dag. Rétt­ar­höldum yfir Clancy lauk í síð­ustu viku án nið­ur­stöðu þar sem kvið­dómur náði ekki sam­hljóða nið­ur­stöðu. Dómari lýsti því yfir að rétt­ar­höldin væru ógild.

Clancy hefur verið ákærð fyrir þrjú morð vegna dauða barna sinna. Sak­sókn­arar halda því fram að hún hafi kyrkt börnin.

Redd­ington beindi orðum sínum sér­stak­lega að Trump í við­tal­inu og sagð­ist von­ast til þess að for­set­inn tæki mál Clancy til skoð­unar með hlið­sjón af því sem hún hefði gengið í gegnum.

Slík náðun af hálfu for­set­ans væri þó ekki mögu­leg sam­kvæmt banda­rískum lögum. Náð­un­ar­vald for­seta Banda­ríkj­anna nær til alrík­is­brota en mál Clancy er rekið sam­kvæmt lögum Massachusetts-ríkis.

Clancy neitar sök á grund­velli geð­veiki. Vörn hennar hefur haldið því fram að hún hafi glímt við alvar­legt geð­rof eftir barns­burð auk geð­hvarfa­sýki þegar börnin lét­ust.

Sak­sókn­arar hafa hafnað þeirri málsvörn og segja Clancy hafa verið með­vituð um gjörðir sínar. Meðal ann­ars hefur verið bent á að hún hafi sent eig­in­mann sinn í erindi skömmu áður en börnin lét­ust.

Trump tjáði sig um málið á föstu­dag og sagð­ist hafa fylgst með rétt­ar­höld­unum. Hann lýsti mál­inu sem hræði­legum harm­leik og sagði stöð­una afar sorg­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta