Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í dag og í nótt. Meðal annars var samkvæmi í samkomusal stöðvað vegna brots á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
Nokkur umferðarlagabrot komu einnig til kasta lögreglu. Ökumaður var handtekinn eftir að hafa valdið umferðaróhappi en hann var grunaður um ölvun við akstur.
Þá voru tveir ökumenn handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og fimm ökumenn voru sektaðir fyrir of hraðan akstur.
Alls voru fjórir aðrir ökumenn handteknir vegna gruns um fíkniefnaakstur samkvæmt dagbók lögreglu.
Lögregla var jafnframt kölluð til vegna þjófnaðar.
Að lokum var einstaklingur handtekinn fyrir brot á lögreglusamþykkt vegna áfloga og óspekta á almannafæri.































Athugasemdir