Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslendingar sigruðu nígerísk fyrirtæki í héraðsdómi

Háar fjár­hæðir voru undir

Íslendingar sigruðu nígerísk fyrirtæki í héraðsdómi
Borg­ar­nes Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands er stað­settur þar Mynd: Wikipedia/Chensiyuan

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands hefur sýknað Klumbu ehf. af kröfum tveggja níger­ískra félaga sem námu sam­an­lagt tæp­lega 39 millj­ónum króna. Málin tengd­ust við­skiptum með þurrk­aðar fiskaf­urðir til Nígeríu. Báðir dómar voru kveðnir upp 14. sept­em­ber.

Í öðru mál­inu krafð­ist Imma Joe Global Resources Ltd. þess að Klumba greiddi félag­inu 10.136.775 krónur auk drátt­ar­vaxta og máls­kostn­aðar. Krafan skipt­ist í 50 þús­und Banda­ríkja­dali vegna gall­aðrar vöru­send­ingar og 32.500 dali vegna meintrar bón­us­greiðslu.

Klumba hafn­aði kröf­unum og benti meðal ann­ars á að við­skiptin hefðu farið í gegnum íslenska félagið Svalþúfu ehf. Dómurinn taldi gögn máls­ins styðja að Svalþúfa hefði gegnt umfangs­miklu hlut­verki í við­skipt­unum og ekki þótti sannað að Imma Joe Global Resources ætti beina kröfu á Klumbu.

Klumba var því sýknuð af öllum kröfum félags­ins og Imma Joe Global Resources gert að greiða eina milljón króna í máls­kostnað.

Í hinu mál­inu krafð­ist Rosebeth Obiesika & Co. 28.601.360 króna greiðslu frá Klumbu auk vaxta og máls­kostn­aðar. Félagið taldi sig eiga 224.306 Banda­ríkja­dala kröfu vegna inn­borg­ana í tengslum við skreið­ar­við­skipti.

Stefn­andi hélt því fram að Klumba hefði tekið við greiðslum án þess að afhenda umsamið magn afurða. Dómurinn taldi hins vegar ósannað að Klumba hefði beitt svikum eða blekk­ingum. Þá næði við­skipta­yf­ir­lit, sem krafan byggð­ist á, til margra við­skipta­manna og upp­runi hluta greiðsln­anna væri óljós.

Klumba var sýknuð að svo stöddu í mál­inu þar sem end­an­legt upp­gjör við­skipta hefði ekki farið fram. Rosebeth Obiesika & Co. var gert að greiða Klumbu 1,2 millj­ónir króna í máls­kostnað.

Sam­an­lagt var því Klumba sýknuð af kröfum upp á 38,7 millj­ónir króna í mál­unum tveimur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi