Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Heimir Hall­gríms­son Er þjálf­ari Írlands Mynd: PAUL FAITH / AFP

Ísra­elska knatt­spyrnu­sam­bandið hefur svarað ummælum Heimis Hall­gríms­sonar, lands­liðs­þjálf­ara Írlands, af hörku og sakar hann um heimsku, fáfræði og hræsni. Ummælin falla í aðdrag­anda tveggja umdeildra leikja Írlands og Ísraels í Þjóða­deild­inni.

Írland hefur leik í Þjóða­deild­inni gegn Kosovo í Pristina á fimmtu­dag en fram undan eru einnig tveir leikir gegn Ísrael.

Mikil umræða hefur verið á Írlandi um leik­ina vegna þjóð­ar­morðs­ins á Gaza og hafa komið fram kröfur um að írska lands­liðið snið­gangi viður­eign­irnar. Á auka­að­al­fundi írska knatt­spyrnu­sam­bands­ins, FAI, í júlí var hins vegar sam­þykkt til­laga um að leik­irnir skyldu fara fram.

Heimir ræddi stöð­una þegar hann til­kynnti lands­liðs­hóp sinn í síð­ustu viku. Hann sagði suma leik­menn óþægi­lega með til­hugs­un­ina um að mæta Ísrael en að sú stað­reynd að þeir hefðu þegið lands­liðs­boðið sýndi sterkan lið­sanda.

Þegar Heimir var spurður hvernig gengi að halda ein­beit­ingu leik­manna við knatt­spyrn­una í aðdrag­anda leikj­anna svar­aði hann:

„Ég hef sagt það áður, við erum ekki að spila með þjóð­ar­morði, við erum að spila gegn þjóð­ar­morði. Við erum að spila gegn Ísrael, við erum ekki að spila með Ísrael.“

Ummælin hafa vakið hörð við­brögð í Ísrael. Ísra­elska knatt­spyrnu­sam­bandið birti yfir­lýs­ingu á opin­berum Twitter-reikn­ingi sínum þar sem Heimir var gagn­rýndur per­sónu­lega.

„Við höfum lagt okkar af mörkum til heims­ins og mann­kyns­ins á ótal sviðum og unnið til glæsi­legs fjölda Nóbels­verð­launa í leið­inni. Því miður höfum við ekki enn fundið lækn­ingu við heimsku, fáfræði og hræsni sem þjálf­ari @IrelandFootball sýnir,“ sagði meðal ann­ars í yfir­lýs­ing­unni.

Sam­bandið sneri síðan orðum Heimis gegn honum og bætti við:

„Við erum ekki að spila með fáfræði, hræsni og heimsku. Við erum að spila gegn þjálf­ar­anum sem hold­gerir þetta.“

Samkvæmt írskum fjöl­miðlum hefur ísra­elska knatt­spyrnu­sam­bandið jafn­framt haft til skoð­unar að leggja fram form­lega kvörtun til UEFA vegna ummæla Heimis.

Í sept­em­ber komst óháð rann­sókn­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna að þeirri nið­ur­stöðu að Ísrael hefði framið og héldi áfram að fremja þjóð­ar­morð gegn Palest­ínu­mönnum á Gaza. Ísraelsk stjórn­völd hafa hafnað þeirri nið­ur­stöðu.

Þrátt fyrir þrýst­ing um að snið­ganga leik­ina hefur FAI ákveðið að halda sig við þá ákvörðun að lands­liðið mæti Ísrael. Ummæli Heimis og hörð við­brögð ísra­elska sam­bands­ins hafa nú aukið enn frekar á spenn­una fyrir leik­ina tvo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sport

Sport

Lakers-goð­sögn mætir á OnlyFans

Lék lengst af með Los Angeles Lakers og varð NBA meistari með liðinu tvö ár í röð
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félags­ins ráð­ast

Myndband
Sport

Lög­reglan kölluð til vegna þriggja ára fót­bolta­snill­ings

Sport

Ætlar að birta eina brjósta­mynd á dag þar til þjálf­ari Man Utd verður rek­inn

Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harka­lega