Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

„Fötin rifna við minnsta til­efni og eig­end­urnir eru dóna­legir.“

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi
Saumavél Mynd: Bozhin Karaivanov/Unsplash

Harðlega er deilt á Kölska í nýlegri umræðu á Reddit þar sem spurt er um reynslu fólks af klæð­skerum og fyr­ir­tækjum sem bjóða jakka­föt eftir máli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar koma fram nokkrar nei­kvæðar reynslu­sögur af fyr­ir­tæk­inu, þótt aðrir við­skipta­vinir seg­ist hafa verið ánægðir með bæði þjón­ustu og gæði.

Rétt er að taka fram að þeir sem tjá sig í umræð­unni koma ekki fram undir fullu nafni heldur not­enda­nöfnum á Reddit. Ekki hefur verið unnt að sann­reyna frá­sagnir þeirra og er hér því um per­sónu­legar reynslu­sögur og full­yrð­ingar nafn­lausra að ræða.

Upp­hafs­maður umræð­unnar velti fyrir sér hvar bestu gæði og þjón­ustu væri að finna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sér­stak­lega þegar kæmi að svoköll­uðum full-canvas jakka. Herra­garð­ur­inn, Thomsen, Kölski, Suitup, John Tailor og Zantino voru meðal fyr­ir­tækja sem nefnd voru.

Ein harð­asta gagn­rýnin beind­ist að Kölska. Notandi sagð­ist þekkja til reynslu þriggja vina eig­in­manns síns af fyr­ir­tæk­inu.

„Vinir eig­in­manns míns hafa þrír verslað við Kölska og hafa slæma reynslu að láta sauma jakka­föt þarna,“ skrif­aði við­kom­andi og bætti við: „Fötin rifna við minnsta til­efni og eig­end­urnir eru dóna­legir.“

Athygli vekur að 22 not­endur Reddit hafa tekið undir þetta.

Einn sem tók undir gagn­rýn­ina skrif­aði ein­fald­lega: „Sama hér. Mæli ekki með Kölska.“ Sá hinn sami sagð­ist hins vegar hafa góða reynslu af Suitup og eiga þrenn jakka­föt þaðan. Elstu fötin væru um sjö ára gömul og enn í góðu ástandi.

Fleiri nei­kvæðar frá­sagnir birt­ust um Kölska. Einn not­andi sagð­ist hafa heyrt af vanda­málum tengdum afhend­ingu fyrir brúð­kaup. „Hef heyrt fleiri en eina sögu af ónýtum brúð­kaupum vegna Kölska – menn sem fengu ekki fötin sín í tæka tíð,“ skrif­aði hann.

Ekki voru þó allir sam­mála gagn­rýn­inni. Notandi sem sagð­ist hafa verslað hjá Kölska árið 2023 lýsti allt annarri reynslu. Hann sagði þjón­ust­una hafa verið vin­gjarn­lega, fötin vel saumuð og að enn sæist lítið sem ekk­ert á þeim. Hann gagn­rýndi þó hversu langan tíma ferlið tók.

Suitup fékk einnig bæði jákvæð og nei­kvæð ummæli. Einn not­andi sagð­ist hafa „bara gott að segja“ um fyr­ir­tækið og lýsti jakka­fötum þaðan sem þeim bestu sem hann ætti. Annar sagð­ist hins vegar þekkja nokkra sem hygð­ust hvorki versla aftur hjá Kölska né Suitup.

John Tailor fékk öllu jákvæð­ari umfjöllun í þræð­inum. Einn not­andi sagð­ist nota fyr­ir­tækið fyrir öll sín vinnu­föt auk jakka­fata og blazera. „Ég tel að gæðin séu mjög góð og verðið sann­gjarnt. Mæli hik­laust með honum,“ skrif­aði við­kom­andi.

Ein­stak­lingur sem seg­ist vera fag­lærður klæð­skeri og kjóla­meist­ari bland­aði sér jafn­framt í umræð­una og benti á að mik­il­vægt væri að gera grein­ar­mun á eig­in­legum sér­saumi og fatn­aði sem saum­aður er eftir máli. Að hans sögn væru fyr­ir­tækin sem talin voru upp í upp­haf­legu færsl­unni almennt ekki að sauma flík­urnar frá grunni hér á landi heldur væru þær saum­aðar erlendis eftir mæl­ingum eða mátun og síðan lag­aðar eftir þörfum.

Mælti hann frekar með því að þeir sem vildu eig­in­legan sér­saum leit­uðu beint til klæð­skera og nefndi Saum­sprett­una, Klæð­skera­höll­ina og 7íhöggi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi