Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Alls voru 43 ákærukaflar í mál­inu

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um málið Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Karl­maður hefur verið dæmdur í níu mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir fjár­svik og þjófn­aði í versl­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Meðal þess sem mað­ur­inn sveik út voru fjöl­margar kjúklinga­vörur og súkkulaði, en hann not­aði ódýr­ari strik­a­merki við sjálfs­af­greiðslu­kassa til að greiða aðeins brot af raun­veru­legu verði var­anna.

Dómur féll í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 28. sept­em­ber. Maðurinn ját­aði brot sín ský­laust en alls voru 43 ákærukaflar í mál­inu. Fallið var frá einum þeirra, sem varð­aði skjala­fals.

Fyrsta brotið átti sér stað í jan­úar 2025 þegar mað­ur­inn sveik út Katsu kjúklinga-pokeskál sem kost­aði 2.290 krónur. Hann setti strik­a­merki af vöru sem kost­aði aðeins 45 krónur á umbúð­irnar og greiddi því 45 krónur fyrir skál­ina.

Kjúklingur kom ítrekað við sögu næstu vik­urnar. Maðurinn sveik meðal ann­ars út Ali Rodizio kjúkling í nokkrum versl­unum og voru vör­urnar í ein­stökum til­vikum að verð­mæti rúm­lega 3.000 krónur. Þá sveik hann út kjúklinga­bringur og BBQ-kjúklinga­spjót. Spjótin kost­uðu 7.799 krónur en mað­ur­inn greiddi aðeins 69 krónur fyrir þau með því að nota rangt strik­a­merki.

Súkkulaði var einnig áber­andi í brota­hrin­unni. Í mars sveik mað­ur­inn út Kinder Delice súkkulaði að verð­mæti 798 krónur en greiddi 79 krónur. Hann stal einnig Kinder Maxi súkkulaði í nokkrum til­vikum og í apríl sveik hann út Ferrero súkkulaði sem kost­aði 998 krónur með því að nota 79 króna strik­a­merki.

Listinn yfir vör­urnar var þó mun lengri. Þar má meðal ann­ars finna brauð, skyr, ost, kaffi, kart­öflur, pek­an­hnetur, app­el­sínusafa, pítusósu, egg, orku­drykki, fæðu­bót­ar­efni og bíla­hleðslur.

Samkvæmt dóm­inum hafði mað­ur­inn ekki áður gerst sekur um refsi­vert brot svo kunn­ugt væri. Hann ját­aði brotin, lýsti iðrun og hafði greitt bóta­kröfu að fjár­hæð 61.202 krónur að fullu.

Dómurinn taldi níu mán­aða fang­elsi hæfi­lega refs­ingu með hlið­sjón af fjölda brot­anna og fjár­hæð­unum. Fulln­ustu refs­ing­ar­innar var hins vegar frestað og fellur hún niður eftir tvö ár haldi mað­ur­inn almennt skil­orð.

Honum var jafn­framt gert að greiða rúm­lega eina milljón króna í málsvarn­ar­þóknun verj­anda síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi