Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

Samtök leigj­enda hafa áhyggjur af þró­un­inni

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Húsa­leigan sligar marga Verð­bólgu­þrýs­ing­ur­inn eykst segja Samtök leigj­enda Mynd: Jakub Żerdzicki / Unsplash

Auglýst leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er að með­al­tali 9,3 pró­sentum hærra en verð í nýjum leigu­samn­ingum sem skráðir voru hjá HMS í ágúst, sam­kvæmt könnun Samtaka leigj­enda.

Samtökin tóku saman upp­lýs­ingar úr yfir 600 leigu­aug­lýs­ingum í síð­ustu viku. Könnunin nær til 534 heilla eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að her­bergja­leigu und­an­skil­inni.

Með­alleigu­verð í aug­lýs­ing­unum var 4.691 króna á fer­metra á mán­uði. Til sam­an­burðar var með­al­verð í nýjum leigu­samn­ingum sem skráðir voru hjá HMS í ágúst 4.290 krónur á fer­metra.

Fyrir 80 fer­metra íbúð nemur mun­ur­inn rúmum 32 þús­und krónum á mán­uði, eða um 385 þús­und krónum á ári.

Segja þetta geta aukið verðbólguþrýsting

Samtök leigj­enda telja nið­ur­stöð­urnar benda til þess að frek­ari verð­bólgu­þrýst­ingur gæti skap­ast þegar hærra aug­lýst leigu­verð skilar sér inn í nýja leigu­samn­inga.

Reiknuð húsa­leiga hafði þegar veru­leg áhrif á verð­bólgu í ágúst. Samkvæmt Hagstofu Íslands hækk­aði vísi­tala neyslu­verðs þá um 0,20 pró­sent og lagði reiknuð húsa­leiga 0,18 pró­sentu­stig til hækk­un­ar­innar.

Gögn sam­tak­anna sýna jafn­framt að með­al­fer­metra­verð í nýjum leigu­samn­ingum hjá HMS var 4.151 króna í des­em­ber 2025. Auglýsta leigu­verðið í könn­un­inni í sept­em­ber er því 13 pró­sentum hærra en þá.

Ársleiga 6,84 prósent af kaupverði

Samtök leigj­enda bera einnig saman leigu­verð og kaup­verð íbúð­ar­hús­næðis.

Miðað við með­al­fer­metra­verð í könn­un­inni og með­al­fer­metra­verð seldra íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ágúst nemur árs­leiga 6,84 pró­sentum af kaup­verði íbúðar.

Samkvæmt útreikn­ingum sam­tak­anna jafn­gildir sam­an­lögð leiga í 14,6 ár, eða innan við 15 ár, kaup­verði íbúðar ef gert er ráð fyrir óbreyttu leigu- og kaup­verði.

Leigj­and­inn eign­ast þó engan hlut í hús­næð­inu á móti leigu­greiðsl­unum.

Samtök leigj­enda segja þetta hlut­fall óeðli­lega hátt.

Munur á Norðurlöndunum

Samtökin setja nið­ur­stöð­urnar einnig í sam­hengi við lands­við­mið fyrir leigu- og kaup­verð á fer­metra árið 2025. Þar er hlut­fall árs­leigu af kaup­verði eft­ir­far­andi:

  • Ísland: 4,55 pró­sent
  • Danmörk: 2,51 pró­sent
  • Svíþjóð: 3,70 pró­sent

Nið­ur­staða könn­unar Samtaka leigj­enda, 6,84 pró­sent, byggir hins vegar á aug­lýstu leigu­verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í sept­em­ber 2026 og er því ekki sam­bæri­legt lands­við­mið fyrir árið 2025.

Samtök leigj­enda kalla eftir við­brögðum stjórn­valda og segja hús­næð­is­stefnu þurfa að taka mið af því verði sem fólk mætir þegar það leitar sér að heim­ili.

„Leigj­endur þurfa hús­næði núna — ekki fleiri fyr­ir­heit,“ segir í til­kynn­ingu sam­tak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara