Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Stal nær­föt­unum en skildi eftir orku­drykki

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Maðurinn sætti sig ekki við höfnun Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Luis Villasmil/Unsplash

33 ára jap­anskur karl­maður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs skil­orðs­bundið fang­elsi eftir að hafa brot­ist ítrekað inn á heim­ili konu sem hann kynnt­ist í gegnum tölvu­leik á net­inu. Maðurinn er sagður hafa farið inn í íbúð hennar meira en hund­rað sinnum án leyfis.

Maðurinn, Jun Okada, var sak­felldur meðal ann­ars fyrir hús­brot og þjófnað auk brota sem tengd­ust leyni­legum upp­tökum af kon­unni. Hér­aðs­dómur Tókýó dæmdi hann 24. sept­em­ber í tveggja ára og sex mán­aða fang­elsi, en fulln­ustu refs­ing­ar­innar var frestað skil­orðs­bundið í fjögur ár.

Okada og konan kynnt­ust í gegnum net­leik í des­em­ber 2022. Sumarið 2023 dvaldi hann næt­ur­langt á heim­ili hennar og spurði hana morg­un­inn eftir hvort hún vildi vera kærasta hans. Konan hafn­aði honum, meðal ann­ars vegna óstöðugrar fjár­hags­stöðu hans.

Okada sætti sig ekki við höfn­un­ina og hélt áfram að mæta óboð­inn þar til konan lok­aði á öll sam­skipti við hann.

Í októ­ber 2023 komst hann inn í íbúð hennar í gegnum ólæstan glugga á svölum. Þar fann hann upp­lýs­ingar sem gerðu honum kleift að útbúa auka­lykil að íbúð­inni. Í kjöl­farið hófust reglu­legar heim­sóknir hans án vit­undar kon­unnar.

Samkvæmt sak­sóknurum braust Okada meira en hund­rað sinnum inn á heim­ili hennar. Hann stal meðal ann­ars nær­fötum hennar og þremur útrunnum öku­skír­teinum. Fyrir dómi sagð­ist hann hafa tekið gömlu öku­skír­teinin vegna þess að hann vildi sjá hvernig útlit hennar hefði breyst í gegnum árin.

Hann tók jafn­framt ljós­mynd af gildu skil­ríki hennar en sagð­ist hafa ákveðið að stela því ekki þar sem það myndi valda henni vand­ræðum.

Okada dvaldi stundum í allt að tvær klukku­stundir í íbúð­inni meðan konan var fjar­ver­andi. Þar borð­aði hann mat hennar, slak­aði á og stund­aði sjálfs­fróun í her­bergi hennar.

Í mars á þessu ári kom hann einnig fyrir fal­inni mynda­vél í stof­unni. Mynda­vélin var dul­búin sem USB-hleðslu­tæki og not­aði hann hana til að taka kon­una upp nakta og á nær­föt­unum. Hann kom reglu­lega aftur í íbúð­ina til að skipta um minniskort í tæk­inu.

Fyrir dómi kom jafn­framt fram að Okada hefði stundum þrifið íbúð­ina og fyllt á ísskáp­inn með orku­drykkjum. Hann sagð­ist hafa viljað „koma henni að gagni“. Þá hafði hann keypt ný nær­föt í stað þeirra sem hann stal.

Upp komst um brotin 19. mars þegar konan kom heim um klukkan fimm síð­degis. Okada var þá inni í íbúð­inni og hafði læst hurð­inni innan frá. Þegar konan komst ekki inn reyndi hann að flýja út um sval­irnar en rakst þar á hana.

Lögregla kom skömmu síðar á vett­vang og hand­tók hann og ját­aði hann brotin fyrir dómi.

Í yfir­lýs­ingu sem lesin var upp fyrir dómi lýsti konan miklum óhug vegna hátt­semi Okada og sagði ógn­vekj­andi að hann hefði reynt að kom­ast að nán­ast öllu um líf hennar. Hún fór fram á að honum yrði refsað harð­lega.

Okada bað kon­una að lokum afsök­unar og sagð­ist gera sér grein fyrir að honum væri óheim­ilt að hafa sam­band við hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife