Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

James Acaster fékk kvíðakast við tökur á Celebrity Traitors

„Það var gott fyrir James að fá smá hvíld og öllum fannst það vera það rétta í stöð­unni.“

James Acaster fékk kvíðakast við tökur á Celebrity Traitors
James Acaster Acaster hefur áður opnað sig um and­leg veikndi sín Mynd: DIMITRIOS KAMBOURIS / GETTY IMAGES VIA AFP

Gam­an­leik­ar­inn og uppi­stand­ar­inn James Acaster varð að sögn „sýni­lega stress­aður“ við tökur á nýrri þátta­röð af raun­veru­leika­þætt­inum Celebrity Traitors og þurfti fram­leiðslan að gera hlé á upp­tökum til að hann gæti róað sig.

The Traitors hefur löngum verið spennu­þrungið sjón­varps­efni fyrir áhorf­endur og virð­ist álagið ekki síður mikið á þá sem taka þátt í leiknum.

Acaster er meðal þátt­tak­enda í annarri þátta­röð Celebrity Traitors, ásamt meðal ann­ars Maya Jama, Miröndu Hart, Ross Kemp og James Blunt. Claudia Winkleman stýrir þætt­inum sem snýst um blekk­ingar, svik og bak­tjalda­makk.

Heim­ild­ar­maður sem þekkir til fram­leiðsl­unnar segir við The Sun að sál­rænt álag hafi á einum tíma­punkti reynst Acaster mikið. Samkvæmt heim­ild­ar­mann­inum varð hann mjög kvíð­inn og fékk það sem lýst er sem kvíða-kasti við tökur í Ardross-kast­ala í Skotlandi.

„Þátt­ur­inn er ótrú­lega ákafur og í einni til­tek­inni senu í kast­al­anum varð James mjög kvíð­inn og skelf­ingu lost­inn,“ sagði heim­ild­ar­mað­ur­inn.

Aðrir þátt­tak­endur hafi þá stigið fram og óskað eftir því að hætt yrði að taka upp svo Acaster gæti róað sig. Fram­leiðsluteymið hafi verið sam­mála um að gera hlé.

„Allir fylgj­ast með hver öðrum og það er mikil sam­heldni,“ sagði heim­ild­ar­mað­ur­inn. „Það var gott fyrir James að fá smá hvíld og öllum fannst það vera það rétta í stöð­unni.“

Hléið hafði að sögn engin áhrif á fram­vindu leiks­ins en sýndi hins vegar hversu mikið þátt­tak­endur voru nið­ur­sokknir í keppn­ina.

Tals­maður BBC sagði við frétta­mið­il­inn Metro að The Traitors væri „ein­stakur og mjög krefj­andi leikur“ og að þátt­taka gæti stundum verið erfið.

„For­gangs­verk­efni okkar er ávallt öryggi og vel­ferð allra sem taka þátt. Fylgst er náið með þátt­tak­endum og þeir fá stuðn­ing allan tím­ann frá fram­leiðsluteym­inu, þar á meðal frá sér­stöku og reynslu­miklu vel­ferð­arteymi.“

Hefur áður opnað sig um geðrænan vanda

Acaster, sem er 41 árs, er þekktur fyrir uppi­stand og sem með­stjórn­andi Off Menu-hlað­varps­ins ásamt Ed Gamble, sem einnig teng­ist The Traitors. Hann hefur auk þess komið fram í fjöl­mörgum vin­sælum breskum skemmti- og spurn­inga­þáttum, meðal ann­ars Taskmaster.

Í bók sinni Perfect Sound Whatever, sem kom út árið 2019, fjall­aði Acaster opin­skátt um erfið tíma­bil í lífi sínu árið 2017.

Þá glímdi hann við sam­bands­slit, hætti hjá umboðs­manni sínum og var óviss um fram­tíð­ina á ferli sínum. Hann lýsti því síðar að hann hefði í fyrsta sinn upp­lifað alvar­legar sjálfs­vígs­hugs­anir og áttað sig á því að hann þyrfti á fag­legri aðstoð að halda.

Með hjálp sál­fræði­með­ferðar og með því að sökkva sér í tón­list og list tókst honum að vinna sig út úr um árslöngu tíma­bili þung­lyndis og mik­ils kvíða.

Acaster hefur sagt að það hafi hjálpað sér mikið að tengj­ast tón­list­ar­fólki sem hafði gengið í gegnum svip­aða erf­ið­leika.

Hafði áhyggjur af þátttökunni

Acaster hefur við­ur­kennt að hann hafi haft ákveðnar áhyggjur af því að taka þátt í Celebrity Traitors, sér­stak­lega eftir óvæntan sigur grínist­ans Alan Carr í fyrstu þátta­röð­inni.

Í nýju þátta­röð­inni taka fleiri grínistar þátt, meðal ann­ars Rob Beckett, Joe Lycett og Joanne McNally. Acaster sagði það vera ákveðið áhyggju­efni.

„Það verður grunur um að þetta verði að minnsta kosti einn af þessum gæjum og að við myndum kannski mynda banda­lag ef við yrðum ekki aðskildir,“ sagði hann.

Hann taldi jafn­framt lík­legt að grínist­arnir yrðu undir smá­sjánni strax í upp­hafi, þegar þátt­tak­endur hefðu lítið sem ekk­ert til að byggja grun­semdir sínar á.

Acaster grín­að­ist með það að sigur Alan Carr í fyrri þátta­röð­inni hefði „spillt fyrir okkur öllum“ eftir að Carr hefði náð að afvopna aðra þátt­tak­endur með húmor sínum.

Þrátt fyrir það hafi hann sjálfur verið mik­ill aðdá­andi The Traitors og ein­fald­lega viljað fá að taka þátt.

„Mér fannst fyrsta Celebrity-þátta­röðin frá­bær og varð strax öfund­sjúkur yfir því að ég væri ekki með. Ég varð bara að kom­ast inn í þetta!“ sagði Acaster.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife